fbpx

Fjárhæðir hækka almennt um 4,7%.

Ellilífeyrir

  • Frítekjumark skattskyldra tekna verður eins og áður 25.000 kr. á mánuði. Við bætist sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna sem verður 100.000 kr. á mánuði. Það kemur til framkvæmda 1. febrúar 2018.
  • Heimilisuppbót verður að hámarki 60.516 kr. á mánuði.
  • Ellilífeyrir þeirra sem búa ekki einir verður að hámarki 239.484 kr. á mánuði.
  • Ellilífeyrir þeirra sem búa einir verður að hámarki 300.000 kr.
  • Hægt verður að fara á hálfan lífeyri frá TR á móti hálfum lífeyri frá lífeyrissjóðum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, sjá nánar á tr.is