Landsfundur LEB – Landssambands eldri borgara verður væntanlega haldinn á Hótel Selfossi, miðvikudaginn 26. maí 2021, kl. 10:00. Dagskrá samkv. lögum LEB
- Uppstillingarnefnd hefur hafið störf vegna stjórnarkjörs á landsfundinum 2021. Hún er skipuð: Haukur Halldórsson formaður Akureyri, Stefanía Magnúsdóttir Garðabær, Ómar Kristinsson Kópavogur, Sigurbjörg Gísladóttir Reykjavík og Guðrún Eyjólfsdóttir Reykjanesbær.
- Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram vegna stjórnarkjörs skulu senda tilkynningu þess efnis merkt Framboð, til skrifstofu LEB á netfangið leb@leb.is sem fyrst og fyrir 25. apríl nk.Tilkynna þarf nafn, kennitölu, fullt heimilisfang, símanúmer og netfang. Eins hvort framboðið er til formanns eða til stjórnar, varastjórnar, eða starf skoðunarmanna.
- Á landsfundinum 2021 verður kosið:
A) Staða formanns LEB til tveggja ára.
B) Tvö sæti í stjórn LEB til tveggja ára.
C) Þrjú sæti í varastjórn LEB til eins árs.
D) Staða tveggja skoðunarmanna og varaskoðunarmanna.
- Tillögur uppstillingarnefndar um fólk í stjórn munu liggja fyrir 11. maí og birtar þá á heimasíðu LEB.
Við hvetjum aðildarfélög til að að fara að velja fulltrúa sína á landsfund. Samkv. lögum LEB á hvert félag rétt á 1 fulltrúa fyrir allt 150 fyrstu félagsmenn sína, séu félagsmenn 151 – 300 fær félagið 2 fulltrúa og síðan 1 fulltrúa fyrir hverja 300 félagsmenn til viðbótar eða brot úr þeirri tölu. Velja skal jafn marga varamenn. Fulltrúafjöldi einstakra félaga fer eftir uppgefnum félagafjölda í Ársskýrslu 2020. Félagsstjórn aðildarfélags gefur út kjörbréf fyrir landsfundarfulltrúa og skal senda það til stjórnar LEB a.m.k. 2 vikum fyrir landsfund, undirritað af formanni og ritara aðildarfélags.
TÍMALÍNA FYRIR LANDSFUND LEB 2021
25 MARS – tveir mánuðir í landsfund
- Uppstillingarnefnd hefur störf og auglýsir eftir framboðum til stjórnar, varastjórnar, skoðunarmanna og varaskoðunarmanna, á heimasíðu LEB.
- Síðasti skiladagur á tillögum til lagabreytinga sem berst stjórn og laganefnd
13. APRÍL – sex vikur í landsfund
- Landsfundur boðaður skriflega og auglýstur á heimasíðu LEB
- Tillögur stjórnar fyrir landsfund kynntar ásamt dagskrá, stað og tíma
- Tillögur til lagabreytinga kynntar með landsfundarboði
25. APRÍL – mánuður í landsfund
- Lokadagur skila á tillögum aðildarfélaga til LEB
- Lokadagur til að skila inn framboðum vegna stjórnarkjörs og trúnaðarstarfa
- Kjörbréfanefnd hefur störf
11. MAÍ – tvær vikur í landsfund
- Uppstillingarnefnd kynnir tillögur sínar og liggja þær frammi á skrifstofu og kynntar á heimasíðu LEB
- Lokadagur skila á kjörbréfum frá aðildarfélögum
18. MAÍ – vika í landsfund
- Endurskoðaðir og áritaðir ársreikningar ásamt skýrslu stjórnar liggja frammi á skrifstofu og birt á heimasíðu LEB
26. MAÍ
- Landsfundur LEB