Ályktun landsfundar vegna Öldungaráðs Reykjavíkurborgar
Ályktun vegna Öldungaráðs Reykjavíkur, samþykkt á landsfundi 29. apríl 2025
Aðalfundur Landsambands eldri borgara (LEB) haldinn 29. apríl 2025 mótmælir harðlega þeirri ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá því í ágúst sl. að fækka fulltrúum Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) í Öldungaráði, úr þremur í einn.
Landsamband eldri borgara eru heildarsamtök. Tilgangur þeirra er að tryggja samstillta hagsmunabaráttu félaga eldri borgara. Skv. 7 gr. laga um málefni aldraðra eiga félög eldri borgara að tilnefna þrjá fulltrúa í öldungaráð í öllum sveitarfélögum landsins.
Borgarráð (í umboði Borgarstjórnar) ákvað einhliða á fundi sínum 15. ágúst sl. að fækka fulltrúum Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni í Öldungaráði Reykjavíkur úr þremur í einn.
Breytingin felur í sér að brjóta á bak áratugalanga baráttu Landsambands eldri borgara um lýðræðislega og samstillta hagsmunabaráttu eldri borgara svo fulltrúar meirihlutans í Reykjavík geti handvalið ákveðin félagasamtök án gagnlegs rökstuðnings.
Félag eldri borgara í Reykjavík (FEB) er eina félag eldri borgara í Reykjavík sem berst fyrir réttindum eldri borgara og er með um 16 þúsund félagsmenn.
Aðalfundur LEB haldinn 29. apríl 2025 skorar á Borgarstjórn Reykjavíkur að endurskoða ákvörðun sína og fjölga fulltrúum FEB í þrjá eins og öldungaráð var skipað í mörg ár.