Hreyfidagatal

Hreyfidagatalið er til sölu hjá LEB á 9.900 kr.

Um er að ræða A5 gormabók sem er sett upp eins og dagatal, þar sem hver dagur inniheldur eina æfingu með skýrum leiðbeiningum og myndum. Boðið er upp á bæði auðveldari og erfiðari útfærslur til að mæta mismunandi getu notenda. Dagatalið er margnota og hægt að nota ár eftir ár án þess að þörf sé á sérstökum búnaði.

Skipulag æfinga tekur mið af mikilvægustu forvarnarþáttum í öldrunarþjónustu, með áherslu á styrk og jafnvægi sem lykilþætti í að draga úr byltuhættu og viðhalda færni. Auk þess eru æfingar sem styðja við liðleika, samhæfingu, slökun og andlega heilsu.

Hægt er að ganga frá kaupum og greiðslu í gegnum hlekk hér til hliðar og sækja dagatalið á tilsettum degi á skrifstofu LEB, Stórhöfða 31, virka daga, milli kl. 9:00 og 12:00.

Hreyfidagatalið kom út vorið 2026 og var í forsölu hjá Félagi sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu.

Í dag fæst það hjá LEB og er þar á góðu verði: 9.900 kr.

Vinsamlegast athugið að einungis er hægt að kaupa eintök hjá LEB gegn því að sækja þau á opnunartíma skrifstofu milli 9:00 og 12:00 á virkum dögum.

Hreyfidagatalið er þróað af sjúkraþjálfurunum Hildi Aðalbjörgu Ingadóttur og Svandísi Björk Guðmundsdóttur fyrir hönd Félags sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu  og nýtur stuðnings Landssambands eldri borgara, Félags sjúkraþjálfara og Farsællar öldrunar – þekkingarmiðstöðvar.