Fulltrúi LEB með félags- og húsnæðismálaráðherra í átakinu Hreyfing alla ævi

Inga Sæland með hressu fólki í Fylki

Fulltrúar ÍSÍ og LEB í verkefninu Björtum lífsstíl slógust í för með Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem skellti sér í vikunni í leikfimitíma með hraustum eldri borgurum hjá Fylki í tengslum við átakið Hreyfing alla ævi.

„Verkefnið okkar snýst um það að efla heilsu eldra fólks um allt land og sjá til þess að sveitarfélög séu með verkefni eins og þessi í öllum sveitarfélögum,” segir Margrét Regína Grétarsdóttir, verkefnisstjóri hjá ÍSÍ. Og Ásta Sigurjónsdóttir, verkefnisstjóri hjá Landssambandi eldri borgara bætir við. „Takmarkið í raun og veru er að þetta verði sjálfsagt í framtíðinni að fólk stundi svona leikfimi og hreyfingu fram eftir aldri til þess að auka lífsgæðin og vera sjálfstæðara lengur.”

„Við finnum fyrir miklum áhuga sveitarfélaga vítt og breitt um landið að gera vel í þessum efnum. Í dag eru flest þeirra að bjóða upp á skipulagða hreyfingu eða aðgang að aðstöðu fyrir þennan aldurshóp. Okkar hlutverk hefur verið að styðja við sveitarfélög við að efla heilsu eldra fólks, meðal annars með því að skapa sameiginlegan vettvang þar sem fulltrúar sveitarfélaga koma saman, deila reynslu, fá leiðbeiningar, fræðslu og ráðgjöf. Við leggjum ríka áherslu á að hreyfing sé alltaf í boði í hverju sveitarfélagi, aðgengileg, fjölbreytt og skemmtileg“

Nýtt upplýsingasvæði, island.is/hreyfing-fyrir-60, býður nú upp á upplýsingar um hreyfingu og tómstundir fyrir 60 ára og eldri eftir sveitarfélögum vítt og breitt um landið. Markmiðið er að gera eldra fólki kleift að sjá hvaða tækifæri eru í boði í þeirra nærumhverfi og hvetja það til að taka þátt.

Með reglulegri hreyfingu við hæfi má hægja á einkennum öldrunar og viðhalda getunni til að lifa sjálfstæðu lífi. Við hvetjum alla 60 ára og eldri til þess að kynna sér hvað er í boði sínu nærumhverfi.

Hreyfum okkur alla ævi!

Next
Next

Ályktun landsfundar vegna Öldungaráðs Reykjavíkurborgar