Hreyfing alla ævi

Inni á vefslóðinni www.island.is/hreyfing-fyrir-60 er nú hægt að nálgast upplýsingar um hreyfingu og tómstundir fyrir 60 ára og eldri um allt land.

Í dag má sjá framboð hreyfingar og tómstunda fyrir þennan aldurshóp í tæplega 40 sveitarfélögum og stefnt er á að fleiri bætist við á næstu misserum.

Að verkefninu standa fulltrúar Bjarts lífsstíls, Ásta Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri hjá Landssambandi eldri borgara (LEB) og Margrét Regína Grétarsdóttir, verkefnastjóri hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ), ásamt Birnu Sigurðardóttur, sérfræðingi frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, Örnu Steinarsdóttur, fagstjóra sjúkraþjálfunarþjónustu hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og Hildi Guðnýju Ásgeirsdóttur, verkefnastjóra á lýðheilsusviði hjá Embætti landlæknis.

Verkefnið er hluti aðgerðaráætlunarinnar Gott að eldast sem heyrir undir Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Heilbrigðisráðuneytið. Hópurinn hefur unnið að þessu verkefni frá árinu 2024. Markmiðið er að allar upplýsingar um framboð heilsueflandi úrræða á landsvísu verði aðgengilegar á einum stað þar sem bilið er brúað milli þeirra sem leita eftir þjónustu og þeirra sem standa fyrir henni í hverju sveitarfélagi fyrir sig.

Verkefnastjórar Bjarts lífsstíls hafa átt gott samstarf við fulltrúa sveitarfélaga um að koma upplýsingum á framfæri á nýju svæði inni á island.is.

Ávinningurinn er margþættur: eldra fólk getur fundið hreyfingu og tómstundir við hæfi í sínu nærumhverfi, fagaðilar geta vísað í viðeigandi úrræði og þeir sem sinna hvers kyns úrræði koma sínum upplýsingum á framfæri.

Við hvetjum alla 60 ára og eldri að fara inn á island.is og kynna sér það sem er í boði - Hreyfing alla ævi!

Previous
Previous

Ályktun landsfundar vegna Öldungaráðs Reykjavíkurborgar

Next
Next

Fulltrúi LEB með erindi á ráðstefnu Öldrunarráðs