Andleg heilsa er mikilvæg á öllum æviskeiðum – líka á efri árum. Samvera, hreyfing og góð tengsl við aðra geta haft jákvæð áhrif á líðan og lífsgæði. Það er mikilvægt að halda huganum og líkamanum virkum, læra eitthvað nýtt, sinna áhugamálum, lesa, skapa eða prófa nýja hluti.
Það sem skiptir mestu er að finna það sem veitir gleði, tilgang og tengingu við aðra. Að vera virkur, rækta tengslin og halda áfram að læra og njóta lífsins styrkir bæði huga og hjarta.
Myndaðu tengsl
*
Hreyfðu þig
*
Taktu eftir
*
Haltu áfram að læra
*
Gefðu af þér
*
Myndaðu tengsl * Hreyfðu þig * Taktu eftir * Haltu áfram að læra * Gefðu af þér *
Hvað er góð geðheilsa?
Góð geðheilsa felst meðal annars í því að:
Líða almennt vel og geta notið lífsins, þótt eðlilegt sé að eiga stundum erfiða daga.
Ráða við daglegar athafnir og áskoranir, aðlagast breytingum og sýna þrautseigju þegar á reynir.
Þekkja og viðurkenna eigin tilfinningar, styrkleika og veikleika – og nýta þá innsýn til að vaxa og þroskast.
Mynda og viðhalda góðum tengslum við aðra og sýna samkennd og skilning.
Vera sátt við okkur sjálf, upplifa öryggi, jafnvægi og tilgang.
Geta róað líkama og taugakerfi þegar álag eykst og fundið aftur jafnvægi og ró.
Að vera við góða geðheilsu þýðir ekki að líða aldrei illa. Það er hluti af því að vera manneskja að finna stundum fyrir vanlíðan. En þegar geðheilsan er góð eigum við fleiri góða daga en slæma, getum mætt áskorunum á uppbyggilegan hátt og höldum áfram að þroskast og dafna – þrátt fyrir að lífið sé ekki alltaf auðvelt.
Gulur september
Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum (Embætti landlæknis, Geðhjálp, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala, Lífsbrú, Minningarsjóði Orra Ómarssonar, Píeta samtökunum, Rauða krossinum, SÁÁ, Sorgarmiðstöð, Þjóðkirkjunni og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu). Samvinnan nær aftur til ársins 2009 en þá unnu stofnanir og félagasamtök að því að halda upp á árlegan Alþjóðlegan forvarnardag sjálfsvíga.
Markmiðið er að Gulur september opni samtalið, auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna og sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju. Það er okkur í LEB mikill heiður að fá að styðja við þetta verkefni.
Sjálfsvíg eru lýðheilsuvandi sem hefur víðtækar tilfinningalegar, félagslegar og efnahagslegar afleiðingar. Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna er 10. september, en tilgangur hans er að sýna stuðning við sjálfsvígsforvarnir, að minnast þeirra sem hafa dáið í sjálfsvígi og sýna aðstandendum stuðning og samhug.
Allir sem geta eru hvattir til að taka þátt og sýna þannig stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir.
Effective Communication
Learn how to communicate with clarity, confidence, and purpose. This course explores active listening, tone, body language, and message delivery for stronger, more impactful connections.
Learn tools for organizing ideas, setting goals, and building consistent schedules. From brainstorming to publishing, this course helps turn scattered thoughts into a cohesive plan.
Ástvinamissir vegna sjálfsvígs
Bæklingur (PDF)
Bókin veitir upplýsingar fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi og byggir upphaflega á efni frá Survivors of Suicide (SOS) í Bandaríkjunum. Hér eru einnig viðbætur og staðfærslur sem eru ekki í frumtextanum. Að endurbættri útgáfu árið 2023 stendur embætti landlæknis
Að finna orðin
Bæklingur (PDF)
Samhliða óöryggi okkar um hvernig við eigum að bregðast við syrgjendum þá er það staðreynd að eftir missi vegna sjálfsvígs upplifa mörg minni stuðning frá vinum og fjölskyldu en aðrir syrgjendur. Einnig eru fá úrræði til og takmarkaður stuðningur fyrir aðstand endur eftir sjálfsvíg. Þessum leiðarvísi er ætlað að hjálpa til við að ná til og styðja við þau sem eru þér kær og hafa misst