Umsögn LEB um frumvarp til laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða
Landssamband eldri borgara hefur sent inn umsögn við mál nr. 430 á þingi sem varðar breytingu á lögum um lífeyrissjóði. Um er að ræða umdeilt frumvarp sem við teljum að mundi valda ójafnvægi á lífeyrisréttindum, þar sem halla mundi á eldri borgara. Umsögn okkar má lesa hér fyrir neðan.
Umsögn Landsambands eldri borgara (LEB) um frumvarp til laga um breytingar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997 (víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna).
Landsamband eldri borgara (LEB) hefur tekið til umsagnar frumvarp til breytinga á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, er varðar víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna.
Almennar athugasemdir
LEB leggur ríka áherslu á að ekki megi etja saman öryrkjum og eldri borgurum en með þessu frumvarpi teljum við að verið sé að gera það.
LEB fagnar því að það sé verið að bæta hag öryrkja en hefur áhyggjur af því að með þessu frumvarpi sé verið að skerða ellilífeyri fólks sem hefur greitt í lífeyrissjóði almenns verkafólks. Í þeim sjóðum er örorkan mjög há og þeir sem þangað greiða koma úr láglauna atvinnugreinum, þar sem eru bæði erfið og einhæf störf.
Ábyrgð stjórnvalda á örorku í lífeyriskerfinu
LEB skorar á stjórnvöld að jafna örorkubyrði lífeyrissjóðanna með því að bæta verulega í þær greiðslur sem sjóðirnir fá til sín frá ríkinu til að jafna þessa byrði, með það fyrir augum að þessi breyting handa öryrkjum komi ekki illa við stóran hóp lífeyrisþega.
Niðurstaða
Það getur ekki verið stefna stjórnvalda að ef þau eru að bæta afkomu öryrkja að þá eigi að skerða á móti afkomu lífeyrisþega.
Landsambandið minnir á að það eru um 15.000 eldri borgarar sem eru með tekjur undir lámarkstaxta SGS. Flestir þessara einstaklinga eru einmitt þeir sem hafa greitt iðgjald í þá sjóði sem munu þurfa að skerða sín réttindi til þeirra, ef ekki kemur til verulega aukins framlags frá stjórnvöldum til jöfnunar á örorkubyrði sjóðanna.