Fulltrúi LEB með erindi á ráðstefnu Öldrunarráðs
Aðalfundur og ráðstefna Öldrunarráðs Íslands fór fram í Laugarásbíói fimmtudaginn 15. maí. Yfirskrift fundarins var Haust og hress og fulltrúi LEB fyrir hönd Bjarts lífsstíls var með erindi um hreyfingu 60 ára og eldri. Einnig voru þar áhugaverð erindi um næringu á efri árum, snjalla endurhæfingu á vegum Reykjavíkurborgar og breyttar áherslur í endurhæfingu í sveitarfélaginu Árborg út frá verkefninu Gott að eldast. Einnig var kynnt hugmyndafræði Eden heima í Hveragerði og Halldóra Björnsdóttir tók salinn í létta leikfimi.