Góður árangur af átaki til að draga úr notkun svefnlyfja

Átakið 'Sofðuvel' hófst í mars 2025.

Rannsóknir sýna að svefnlyf hafa lítil áhrif á svefn og langtímanotkun er í flestum tilfellum gagnslaus. Hins vegar geta svefnlyf haft hættur í för með sér og neikvæð áhrif á heilsu og daglegt líf. Ein versta hættan tengist byltum hjá eldra fólki og geta þær í sumum tilfellum haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.

Áætlað er að um þriðjungur fólks 65 ára og eldra detti að minnsta kosti einu sinni á ári og að um helmingur þeirra sem eru 85 ára og eldri. Um 10% bylta fylgja alvarlegir áverkar og um helmingur þeirra áverka eru brot sem oft krefjast innlagnar á sjúkrahús. Mjaðmabrot eru sérstaklega alvarleg og tengjast hárri dánartíðni innan árs frá byltu. Óttinn við að detta getur síðan leitt til minni hreyfingar og minni vöðvastyrks sem hefur mikil áhrif á lífsgæði. Einnig hefur komið í ljós hætta á minnisglöpum tengt svefnlyfjanotkun og lyfin valda einnig hættu í umferðinni.

Til að vekja athygli á hvað ber að varast við notkun svefnlyfja hóf LEB – Landssamband eldri borgara í samstarfi við aðila í heilbrigðisþjónustunni átakið 'Sofðuvel' í mars 2025. Notað var kanadískt fræðsluefni um skammvinn áhrif svefnlyfja og hættuna sem fylgir notkun þeirra.

Árangur af átakinu var mældur með spurningalista sem sendur var út í sumar sem leið gegnum félög eldri borgara og nýlega eru komnar niðurstöður úr þeim. Alls svöruðu 2.172 manns könnuninni (809 karlar og 1.353 konur).

Gögnin sýna að af því eldra fólki sem hafði kynnt sér upplýsingarnar frá Sofðuvel og jafnframt notað svefnlyf áður en átakið hófst, minnkuðu 46,4% notkun sína eða hættu henni alveg. Þessi áhrif voru svipuð þeim sem fengust í Kanada. Yfir fimmtungur svarenda höfðu dottið á síðast liðnum 12 mánuðum og 22% af þeim fóru á bráðadeild eða sjúkrahús vegna alvarlegra meiðsla.

Þriðjungur af öllum svarendum notuðu eitthvað lyf eða efni til að sofa og af þeim notuðu 68% lyf með slævandi áhrif og var þar langstærstur hluti að nota s.k. z-lyf (Imovane, Imomed eða Stilnoct). Um fjórðungur (27%) notaði melatónín og um 10% fleiri en eitt lyf eða efni vegna svefnleysis.

Þriðjungur allra sem svöruðu þekktu til átaksins Sofðuvel. Af þeim 507 sem sögðust hafa haft áhuga á Sofðuvel höfðu 87% aukið þekkingu sína á svefnlyfjum og öðrum úrræðum til að bæta svefn í gegnum átakið. Almennt var mikil ánægja með átakið og bæklingana sem dreift var í apótek og heilsugæslustöðvar um land allt.

Við í samstarfshópnum viljum þakka aðildarfélögum LEB kærlega fyrir aðstoðina við framkvæmd átaksins og spurningalistakönnunina. Í ljósi góðs árangurs Sofðuvel-efnisins og hættunnar sem stafar af svefnlyfjum hjá eldra fólki á Íslandi mun LEB sjá til þess að bæklingar átaksins verði áfram aðgengilegir í apótekum og heilsugæslum og hvetur bæði almenning og heilbrigðisstarfsfólk til að kynna sér það og nýta til að minnka eða hætta notkun lyfja sem geta skaðað eldra fólk.

 

Anna Birna Almarsdóttir, lyfjafræðingur og prófessor við Kaupmannahafnarháskóla og fulltrúar LEB í Samstarfshópi átaksins Sofðuvel.

Nánari upplýsingar um Sofðu vel og bæklinga má finna hér

 

Next
Next

Landsfundur LEB 29. apríl 2026