Umsögn LEB um lagafrumvarp launavísitölu almannatrygginga

Þessa dagana er verið að ræða um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 sem snúa að launavísitölu á Alþingi.

Landssamband eldri borgara sendi inn umsögn vegna frumvarpsins í október síðastliðnum.

Umsögn LEB er eftirfarandi:

157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 161  —  155. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Umsögn  frá Landsambandi eldri borgara (LEB) um Frumvarp til laga


um breytingu á 
lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (launavísitala).

Frá félags- og húsnæðismálaráðherra.


1. gr.

„ Í stað orðsins „launaþróun“ í 2. málsl. 62. gr. laganna kemur: þróun launavísitölu, sbr. lög um launavísitölu „

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2026.

 

Landsamband eldri borgara ( LEB) tekur mjög jákvætt undir tillöguna í frumvarpinu og telur þessa breytingu af hinu góða að miða við launavísitölu, en bendir þó á að lægsti taxti hjá Starfsgreinasambandi Íslands er í dag um 104.822 kr hærri en grunnlífeyrir frá TR.

Einnig að frá 1. janúar 2017 hefur bilið á milli taxta SGS og grunnlífeyris hækkað um rúm 53.000 kr.

Það er markmið LEB að grunnlífeyrir verði ekki lægri en lægsti taxti 18 ára og eldri hjá Starfsgreinasambandi Íslands.

LEB telur þessa gliðnun á milli launa og grunnlífeyris vera með öllu óþolandi og geri ekkert annað en að mismuna fólki eftir aldursskeiðum.

Að lokum vill LEB ítreka að breytingar á málefnum er varða eldri borgara verði gerðar í nánu samráði við landssambandið.

Reykjavík 24. október 2025

F.h. LEB

Björn Snæbjörnsson formaður            staðf. 2595

Next
Next

Góður árangur af átaki til að draga úr notkun svefnlyfja