Umsögn LEB um fjárlagafrumvarp 2027

Umsögn Landssambands eldri borgara (LEB) um frumvarp til fjárlaga ársins 2027

1.mál, lagafrumvarp, 158 löggjafarþing 2026-2027

Til fjárlaganefndar Alþingis

Landssamband eldri borgara (LEB) hefur farið yfir frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 með sérstakri áherslu á kjör og þjónustu við eldri borgara.

LEB fagnar ýmsum mikilvægum skrefum í frumvarpinu, ekki síst 7,3% hækkun ellilífeyris og greiðslna samkvæmt lögum um félagslega aðstoð frá 1. janúar 2027. Sú hækkun byggist á þeirri mikilvægu breytingu sem samþykkt var á síðasta þingi að þróun lífeyris taki mið af launavísitölu.

Þessi breyting er mikilvægur áfangi. LEB hefur árum saman bent á að ellilífeyrir almannatrygginga hafi dregist aftur úr lægstu launum á vinnumarkaði.

 

Grunnlífeyrir og lægstu laun

Í umsögn LEB um fjárlagafrumvarpið 2026 var sérstaklega vakin athygli á vaxandi bili milli grunnlífeyris og lægstu launa á vinnumarkaði.

Þegar breytingar voru gerðar á almannatryggingakerfinu árið 2017 var munurinn rúmlega 51 þúsund krónur á mánuði. Á síðustu árum hefur þetta bil hins vegar meira en tvöfaldast.

Samkvæmt gildandi kjarasamningum á almennum vinnumarkaði hækka kauptaxtar aftur 1. janúar 2027. Það sýnir hversu mikilvægt það er að ellilífeyrir fylgi almennri launaþróun.

LEB fagnar því sérstaklega að samkvæmt forsendum fjárlagafrumvarpsins hækkar ellilífeyrir um 7,3% frá 1. janúar 2027. Án þeirrar lagabreytingar sem samþykkt var á síðasta þingi hefði hækkunin samkvæmt forsendum frumvarpsins verið um 4%.

Munurinn er verulegur.

Tenging ellilífeyris við launavísitölu kemur þannig í veg fyrir að eldri borgarar dragist sjálfkrafa enn lengra aftur úr launafólki þegar laun hækka.

En vandinn sem hefur byggst upp á undanförnum árum hverfur ekki við það eitt.

LEB telur að næsta verkefni stjórnvalda verði að setja sér skýrt markmið um að minnka það bil sem þegar hefur myndast milli grunnlífeyris almannatrygginga og lægstu launa á vinnumarkaði.

Það er ekki nóg að tryggja að bilið breikki ekki. Það þarf að minnka það.

 

Almenna frítekjumarkið

LEB fagnar því að almennt frítekjumark ellilífeyris hækki árið 2027 en telur hækkunina ganga allt of skammt.

Samkvæmt lögfestu ferli hækkar grunnfjárhæð almenna frítekjumarksins úr 43.658kr. á mánuði árið 2026 í 52.210 kr.á mánuði árið 2027, með uppfærslu sem leiðir af launa- og verðlagsbreytingum.

Það jafngildir 5.000 króna hækkun á mánuði áður en tekið er tillit til þeirrar uppfærslu.

LEB hefur lagt til að almenna frítekjumarkið verði ekki lægra en 100.000 krónur á mánuði.

Markmið stjórnvalda um 60.000 króna frítekjumark árið 2028 gengur því að mati LEB allt of skammt.

Skerðingar greiðslna frá Tryggingastofnun eru enn of miklar. Eldri borgarar hafa greitt í lífeyrissjóði áratugum saman og aflað sér þar réttinda. Þegar þau réttindi koma síðan til greiðslu skerða þau greiðslur almannatrygginga.

LEB telur að með hærra frítekjumarki megi draga úr þessum skerðingum og gera fólki kleift að njóta í ríkari mæli þess lífeyris sem það hefur sjálft unnið sér inn.

 

Tekjulægsti hópurinn

Hækkun almenna frítekjumarksins leysir hins vegar ekki vanda þeirra sem verst standa.

Hún gagnast fyrst og fremst þeim sem hafa aðrar tekjur samhliða greiðslum Tryggingastofnunar. Þeir sem eingöngu eða nær eingöngu lifa á greiðslum almannatrygginga fá litla eða enga kjarabót vegna hækkunar frítekjumarksins.

LEB telur að þetta verði að hafa sérstaklega í huga við afgreiðslu fjárlaga.

Það er óásættanlegt að þúsundir eldri borgara séu með heildartekjur undir lægstu launum á almennum vinnumarkaði.

LEB skorar því á ríkisstjórn og fjárlaganefnd að skoða sérstaka hækkun eða uppbót til tekjulægstu ellilífeyrisþeganna, þannig að kjarabætur ársins 2027 nái einnig til þeirra sem minnst hafa.

 

 

Fjármagnstekjur og skerðingar

LEB ítrekar kröfu sína um sérstakt frítekjumark vegna fjármagnstekna.

Margir eldri borgarar hafa lagt fyrir hluta tekna sinna á langri starfsævi eða minnkað við sig húsnæði og lagt mismuninn inn á bankareikning. Við teljum það mismunun að á starfsævinni njóti skattgreiðendur frítekjumarks af fjármagnstekjum, en þegar eftirlaunaaldri er náð skuli þau fríðindi falla niður.

Vaxtatekjur af slíkum sparnaði geta leitt til skerðingar greiðslna Tryggingastofnunar.

LEB telur sérstaklega óeðlilegt að verðbótaþáttur vaxtatekna geti valdið skerðingu. Verðbætur eru vörn gegn rýrnun verðgildis sparnaðarins en ekki raunveruleg aukning kaupmáttar.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar hefur verið boðað að skoðað verði sérstakt frítekjumark vegna fjármagnstekna.

LEB telur tímabært að þeim fyrirheitum verði fylgt eftir, enda óeðlilegt að mismuna fólki skattalega við það að ná eftirlaunaaldri

 

LEB skorar á ríkisstjórnina að lögfesta sérstakt frítekjumark fjármagnstekna eldri borgara og tryggja fjármögnun þess á árinu 2027.

Málefni aldraðra – hækkun útgjalda er ekki öll kjarabót

Fjárheimildir málefnasviðs málefna aldraðra eru áætlaðar rúmlega 140 milljarðar króna árið 2027 samanborið við tæplega 126 milljarða árið 2026.

Nafnhækkunin er því rúmir 14 milljarðar króna eða um 11,3%.

Þessar tölur segja þó ekki alla söguna.

Þegar tekið hefur verið tillit til launa- og verðlagsbreytinga er raunhækkun fjárheimilda um 3,8%. Stór hluti þeirrar aukningar skýrist jafnframt af fjölgun ellilífeyrisþega.

LEB telur mikilvægt að stjórnvöld geri skýran greinarmun á annars vegar auknum útgjöldum vegna fjölgunar eldri borgara og hins vegar raunverulegum kjarabótum og aukinni þjónustu við hvern einstakling.

Fjölgun eldri borgara er fyrirsjáanleg samfélagsþróun. Fjárveitingar verða að taka mið af henni án þess að nauðsynlegur kostnaður vegna fjölgunarinnar sé kynntur sem sérstök kjarabót til eldra fólks.

 

Hjúkrunarheimili og þjónusta

LEB fagnar áformum um fjölgun hjúkrunarrýma.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir fjármögnun rekstrar 192 nýrra hjúkrunarrýma auk 24 skammtímahjúkrunarrýma. Þá hækka framlög til Framkvæmdasjóðs aldraðra verulega.

Þetta eru mikilvæg skref.

LEB hefur hins vegar ítrekað bent á að fjölgun fólks á aldrinum 80 ára og eldri á næstu árum verði mjög mikil. Uppbygging hjúkrunarrýma verður því að vera langtímaverkefni með skýrri framkvæmda- og fjármögnunaráætlun.

Jafnframt verður að efla heimahjúkrun, heimaþjónustu, dagdvöl og stuðning við aðstandendur þannig að fólk geti búið heima eins lengi og það sjálft kýs og aðstæður leyfa.

 

Umboðsmaður eldri borgara

LEB ítrekar kröfu sína um að komið verði á fót sjálfstæðu embætti umboðsmanns eldri borgara.

Eldri borgarar eru stór og ört stækkandi hluti þjóðarinnar. Þeir eiga rétt á sjálfstæðum málsvara sem fylgist með réttindum þeirra, tekur við ábendingum og kvörtunum og getur komið fram með tillögur og bent stjórnvöldum og Alþingi á kerfisbundna annmarka.

LEB sér ekki að sérstök fjárveiting til stofnunar slíks embættis sé tryggð í fjárlagafrumvarpinu.

Sambandið skorar á fjárlaganefnd að beita sér fyrir því að fjármögnun embættisins verði tryggð við afgreiðslu fjárlaga 2027.

 

Fjárhagslegt sjálfstæði LEB

Landssamband eldri borgara sinnir hagsmunagæslu fyrir eldri borgara um allt land.

Umfang starfseminnar og kröfur til sambandsins hafa aukist verulega á síðustu árum. Félögum með aðild að LEB fjölgar stöðugt og eru félagsmenn innan okkar vébanda orðnir tæplega 40 þúsund.  LEB telur ekki eðlilegt að samtök sem gegna svo mikilvægu samfélagslegu hlutverki búi við óvissu um rekstrargrundvöll sinn frá ári til árs.

LEB þakkar þann stuðning sem stjórnvöld hafa veitt starfseminni en telur nauðsynlegt að sambandinu verði tryggð varanleg og fyrirsjáanleg fjármögnun á fjárlögum ríkisins.

Niðurstaða og helstu kröfur LEB

LEB fagnar því sem vel er gert í fjárlagafrumvarpinu 2027. Þar ber hæst 7,3% hækkun ellilífeyris vegna tengingar við launavísitölu, hækkun almenna frítekjumarksins og aukna uppbyggingu hjúkrunarþjónustu.

En betur má ef duga skal.

Við afgreiðslu fjárlaga 2027 leggur LEB sérstaka áherslu á:

1.     Sérstakar kjarabætur til tekjulægstu eldri borgaranna.

2.     Að almenna frítekjumarkið verði hækkað hraðar og stefnt verði að a.m.k. 100.000 kr. á mánuði.

3.     Að sérstakt frítekjumark fjármagnstekna verði lögfest.

4.     Að sett verði skýrt markmið um að minnka bilið milli grunnlífeyris og lægstu launa á vinnumarkaði.

5.     Að uppbygging hjúkrunarrýma, heimahjúkrunar og heimaþjónustu verði tryggð til lengri tíma.

6.     Að fjárveiting verði tryggð til umboðsmanns eldri borgara.

7.     Að LEB verði tryggð varanleg og fyrirsjáanleg fjármögnun á fjárlögum.

8.     Að hafin verði heildarendurskoðun þeirra ákvæða almannatryggingalaga sem snúa að eldri borgurum og skerðingum lífeyris.

Fjárlagafrumvarpið 2027 felur í sér mikilvæg skref í rétta átt. En staða þeirra eldri borgara sem minnst hafa og umfang skerðinga sýnir að verkefninu er langt í frá lokið.

Eldri borgarar eiga ekki að þurfa að sætta sig við að tekjur þeirra séu langt undir lægstu launum á vinnumarkaði eftir áratuga þátttöku í uppbyggingu samfélagsins.

 

Reykjavík 29. September 2026

F.h. Landssambands eldri borgara (LEB)

Björn Snæbjörnsson
formaður

Staðfest nr. 3830

Next
Next

Fundur formanna á Siglufirði