Fundur formanna á Siglufirði
Formannafundur LEB var haldinn dagana 22. -23. september síðastliðinn á Siglufirði.
Á fundinn mættu formenn frá um 40 félögum, vítt og breytt um landið, ásamt starfsmönnum skrifstofu og gestum.
Þetta var í annað sinn sem slíkur staðfundur formanna er haldinn og fyrirkomulagið þannig að fundur hefst kl. 12 á hádegi fyrri daginn og endar kl. 13:00 seinni daginn. Er það gert til að gera sem flestum kleift að nota hálfan dag til að ferðast, til og frá fundi.
Fyrri fundardaginn var áherslan á fræðslumál og fengu fundarmenn m.a. kennslu á Teams og einnig vor kynntar niðurstöður könnunar sem gerð var meðal félaganna um Öldungaráð sveitarfélaganna, virkni þeirra og vinnubrögð. Þær niðurstöður voru fróðlegar og verður efnið notað til eftirfylgni með að virk Öldungaráð séu starfandi í öllum sveitarfélögum.
Einnig var farið í hópavinnu sem lýtur að nýliðun í félögunum. Hvað vilja 60-70 ára sem eru enn á vinnumarkaði, hvað geta félögin gert fyrir aðila á þessum aldri og hvað hentar þeim?
Seinni daginn var meðal annars farið yfir niðurstöður síðasta fundar og hvernig gengið hefur að fylgja eftir þeim áherslumálum sem þar komu fram. Efst á þeim lista voru kjaramál, húsnæðismál og einnig sterk staða og sýnileiki LEB í samfélaginu.
Fundurinn var afar árangursríkur og ærin vinna framundan við að vinna úr því efni sem kom fram. Fundarmenn voru sammála um að þessir fundir væru bæði ánægjulegir og mikilvægir fyrir starf félaganna. Þarna kemur fólk saman til að kynnast og bera saman bækur ásamt því að fræðast um ýmis gagnleg mál.
Tækifærið var einnig notað til að skoða hið einstaka Síldarminjasafn Siglfirðinga og fengum við leiðsögn um það og Siglufjörð frá sjálfum upphafsmanni safnsins, Örlygi Kristfinnssyni.
Allir fóru sáttir og brosandi heim af þessum fundi og ekki skemmdi fyrir að við vorum einstaklega heppin með veður.
Ýtið til hægri eða vinstri til þess að sjá næstu mynd.