LEB hlýtur styrk frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti

Oddný Árnadóttir framkvæmdastjóri LEB, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðisálaráðherra og Sigurður Ágúst Sigurðsson varaformaður LEB

Þann 17. mars hlaut LEB styrki frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti til reksturs og verkefna fyrir árið 2026. Styrkveitingin er einstaklega mikilvæg fyrir sambandið og styður við starf þess og afkomu. Sérstakur styrkur var veittur til verkefnisins Bjartur lífsstíll sem lítur að heilsueflingu eldra fólks um um allt land. Einnig fékk verkefnið Stafræn vegferð eldra fólks í samstarfi við Netvís sérstakan styrk frá ráðuneytinu.

„Sú þjónusta og sá stuðningur sem veittur er innan frjálsra félagasamtaka skiptir samfélagið verulegu máli og er afar mikilvæg viðbót við velferðarkerfið okkar,“ sagði Ragnar Þór þegar hann ávarpaði styrkþega. Með nánum tengslum við ykkar fólk hafið þið jafnframt einstaka innsýn í stöðu samfélagsins hverju sinni og þið eruð oftar en ekki fyrst til að sjá hvar áskoranirnar liggja og hvar skórinn kreppir.“

Ráðherra benti auk þess á að í starfsemi félagasamtaka yrðu oft til nýjar hugmyndir og lausnir sem mikilvægt væri að fá tækifæri til að þróa áfram. „Velferðarstyrkirnir geta því haft mikla þýðingu fyrir félagasamtök og gefur þeim tækifæri til þess að efla starf sitt og þróa ný verkefni og leiðir til þess að styðja sem best við okkar viðkvæmustu hópa og í takt við þróun og breytingar sem sífellt eiga sér stað í samfélaginu,“ sagði hann.

Sjá nánar frétt frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti.

Next
Next

Formaður LEB á degi öldrunar