Auglýsing uppstillingarnefndar 2026

Frestur einstaklinga til að skila framboðum er til 22. apríl skv. lögum LEB.

 

Uppstillingarnefnd auglýsir hér með eftir framboðum til stjórnar LEB á næsta landsfundi sem haldinn verður 29. apríl nk. á Grand hótel í Reykjavík.

Aðildarfélögin geta komið tilnefningum og/eða uppástungum á framfæri við nefndina.

 

Þau sæti sem nú eru laus eru 3 aðalmenn til tveggja ára og 2 varamenn til eins árs.

Fráfarandi úr stjórn eru; Sigrún C Halldórsdóttir gjaldkeri, Þóra Hjaltadóttir ritari og Birgir Hinriksson varamaður.

 

Framboð sem hafa borist nú þegar eru eftirfarandi:

3 framboð í aðalstjórn, þar af 1 sem gefur kost á sér til áframhaldandi setu.

2 framboð í varastjórn, þar af 1 sem gefur kost á sér til áframhaldandi setu.

Aðal- og varaskoðunarmenn reikninga gefa allir kost á sér áfram.

 

Frestur einstaklinga til að skila framboðum er til 22. apríl skv. lögum LEB.

 

Framboðslisti uppstillingarnefndar verður birtur á heimasíðu LEB í síðasta lagi þann 1.apríl skv. ákvörðun nefndarinnar.

 

Framboð/tilnefningar/uppástungur óskast sendar til formanns uppstillingarnefndar:

Jónasar Þórs Jóhannssonar, Fljótsdalshéraði

Sími: 893 1001

Netfang jonas.thor@simnet.is

 

Previous
Previous

Formaður LEB á degi öldrunar

Next
Next

Skrifstofa LEB lokuð 4.mars