Lífeyrismál í Evrópu með Svend Erik Hougaard-Jensen

Landssamband eldri borgara stendur fyrir kynningarfundi um lífeyrismál í Evrópu, með áherslu á Danmörku, mánudaginn 7. september 2026. Fundurinn fer fram á ensku og er opinn öllum sem vilja kynna sér lífeyrismál í nágrannalöndum okkar.

Gestur fundarins er einn helsti sérfræðingur Dana í lífeyrismálum, Svend Erik Hougaard-Jensen. Hann er prófessor í hagfræði, við hagfræðideild CBS (Copenhagen Business School) og er jafnframt forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar um lífeyrismál við CBS.
Auk þessa er hann félagi í Rannsóknarmiðstöð um lífeyrismál á Íslandi (PRICE).

Lesa má nánar um störf hans og rannsóknir á heimasíðu hans:
https://www.shj-econ.eu/

Að erindi loknu mun Svend Erik svara spurningum fundargesta.

Fundurinn fer fram í sal Félags eldri borgara í Reykjavík, að Stangarhyl 4, en verður jafnframt í beinu streymi.

Hægt verður að nálgast upptöku af fundinum á heimasíðu LEB.

Next
Next

Gervigreind