Áfengi og eldra fólk

Er verið að skemma partýið með því að vara eldra fólk við drykkju? Er einhver ástæða fyrir því að það sé ekki ráðlegt að drekka á efri árum?

Anna Björg Jónsdóttir sérfræðingur í öldrunarlækningum og yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala og Valgerður Rúnarsdóttir sérfræðingur í lyflækningum og framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ voru með erindi á fundi formanna aðildarfélaga LEB í febrúar 2026.

Þær voru báðar með erindi á læknadögum sem haldnir voru 19. janúar síðastliðinn. Yfirskrift Læknadaga var ÁFENGI Í ALFARALEIÐ: HIN FALDA SJÚKDÓMSBYRÐI: HVERNIG BIRTIST ÁFENGISNEYSLA Í HEILBRIGÐISKERFINU? SKYGGNST INN Í KIMA KERFISINS.

Í kjölfarið var mikil umræða úti í samfélaginu um áfengisneyslu og þá einkum eldra fólks. Hvaða áhrif hefur áfengi á okkur þegar við eldumst? Hvernig breytist þol okkar gagnvart því þegar vöðvamassi minkar og við byrjum að taka lyf að staðaldri? Íslendingar hafa aukið drykkjuna síðastliðin ár á meðan margar aðrar þjóðir eru að draga úr. Svefninn spillist og lifrar- og hjartasjúkdómar aukast. Anna og Valgerður fræða okkur um hvernig áfengi fer saman við efri árin.

Hlekkur á myndband hér af erindum Önnu og Valgerðar

Previous
Previous

Gervigreind

Next
Next

Ofbeldi er ógn - Tryggjum öryggi eldra fólks