Anna Birna Almarsdóttir og Björn Snæbjörnsson
Lyfjamál eldra fólks voru rædd á málþingi LEB Lyfjasúpunni sem fram fór á Hótel Reykjavík Öskju síðastliðinn fimmtudag. Margir af helstu sérfræðingum landsins í lyfjanotkun Íslendinga voru þar saman komnir til að ræða um og fræða almenning og fagfólk um skynsamlega lyfjanotkun eldra fólks og mikilvægi þess að einstaklingarnir sjálfir, fagfólk og aðstandendur fylgist vel með lyfjanotkun, áhrifum hennar og samsetningu.
Stundum fær fólk lyf sem það á bara að taka í takmarkaðan tíma en er ekki nógu vel upplýst um það. Það má spyrja spurninga og biðja einhvern um að fara yfir lyfin. Fyrir utan betri heilsu, líðan og færni geta líka sparast umfangsmiklar fjárhæðir hjá einstaklingum og ríki ef þess er gætt að ekki sé verið að taka lyf af óþörfu.
Rætt var við Önnu Birnu Almarsdóttur prófessor við Lyfjafræðideild við Kaupmannahafnarháskóla og Björn Snæbjörnsson formann LEB í fréttum RÚV.
Oft þarf eldra fólk á lyfjum að halda vegna veikinda en ekki er þar með sagt að taka þurfi þau lyf ævina á enda.
„Það sem við þurfum eiginlega að gera í dag er að vera miklu meira vakandi fyrir því, bæði fagfólk og fólkið sjálft sem er að nota lyfin, að láta endurskoða þessa lyfjanotkun,“ segir Anna Birna.
Margt geti breyst, ekki sé lengur þörf á ákveðnum lyfjum og líkaminn breytist með aldrinum alveg eins og sjónin. Fólk þurfi að valdeflast gagnvart eigin lyfjatöku, krefjast þess að fá lyfjarýni sem er yfirferð frá fagaðila um samsetningu lyfjanna.
Erum við að gefa eldra fólki of mikið af lyfjum?
„Já er stutta svarið,“ segir Anna Birna.
Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara, segir málþingið senda skilaboð til eldri borgara.
„Passið ykkur, hugsið meira um hvað þið eruð að taka og leitið ykkur upplýsinga í apóteki eða til heimilislæknis. Þarf ég á öllum þessum lyfjum að halda eða ekki?“

