LEB-blaðið 2026 er komið út

Bogi Jónsson

LEB-blaðið 2026 er komið út, fjölbreytt að vanda. Að þessu sinni er blaðið eingöngu gefið út á rafrænu formi. Leiðari formanns, Björns Snæbjörnssonar, og fréttir af skrifstofu eru á sínum stað, auk þess sem landsfundi ársins eru gerð góð skil. Krossgátan er að þessu sinni verðlaunakrossgáta og fleiri þrautir fylgja með líkt og í fyrri blöðum.

Magnús J. Magnússon, meðlimur í stjórn LEB og formaður Félags eldri borgara á Selfossi, skrifar pistla um Öldrunarráð og Gott að eldast. Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur og einkaþjálfari, skrifar pistil um leiðir til að sporna gegn aldurstengdri vöðvarýrnun.

Viðtöl blaðsins eru fjögur og eru óvenjuleg að því leyti að aðeins einn viðmælenda er eldri borgari. Forsíðuviðtalið er við ævintýramanninn og þúsundþjalasmiðinn Boga Jónsson sem hefur reynt margt um ævina, misst allt frá sér tvisvar, auk heilsunnar í áratug, en nýr kafli er tekinn við hjá Boga og Nok eiginkonu hans á Garðskaga.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir frá æsku sinni og hennar helstu fyrirmyndum sem eru foreldrar hennar og afar og ömmur. Hún ræðir einnig málefni eldri borgara í víðu samhengi.

Svala Heiðberg leitar að frásögnum og myndum frá samferðafólki föður síns, sem fórst í skelfilegu flugslysi fyrir 49 árum. Svala undirbýr að skrifa bók um föður sinn og föðurafa.

Að lokum er litið inn í heilsueflingu 60plús á Selfossi og viðtal tekið við Trausta Rafn Björnsson sem leiðir tugi eldri borgara í heilsueflingu í hverri viku í Árborg.

Við vonum að þið njótið lestursins.

Next
Next

Stjórn­málin verða að svara þeim sem minnst hafa