Samstarf við matarvefinn Gott og einfalt

Lambalund með ristuðum jarðskokkum, balsamiksoði og hvítlaukssteiktum grænum belgbaunum af matarvefnum Gott og einfalt.

LEb hefur undirritað samstarfssamning við matarvefinn Gott og einfalt. Vefurinn er samstarfsverkefni SÍBS og Krabbameinsfélags Íslands, unninn í samvinnu við embætti landlæknis. Verkefnið hefur einnig hlotið styrki úr Lýðheilsusjóði embættis landlæknis.

Gott og einfalt er safn uppskrifta að góðum og hollum mat með áherslu á einfaldleika og hagkvæmni. Uppskriftirnar taka mið að opinberum ráðleggingum um mataræði sem standa á sterkum vísindalegum grunni. Faghópur skipaður fulltrúum frá embætti landlæknis, Reykjavíkurborg, Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar, Reykjalundi og Menntaskólanum í Kópavogi veitir ráðgefandi faglegan stuðning tengt efnisvinnslu.

Markmið Gott og einfalt er að gera hollt mataræði aðlaðandi og aðgengilegt öllum þjóðfélagshópum. Skýr og einföld framsetning er til þess fallin að bæta heilsulæsi og auka heilsufarslegan jöfnuð. Auk uppskrifta inniheldur Gott og einfalt leiðbeiningar og fræðslu um eldamennsku, næringu, minni matarsóun og fleira.

Markmið samstarfsins er að auka sýnileika og miðlun á jákvæðum og hvetjandi skilaboðum um hollt mataræði með því að sameina krafta LEB og matarvefsins Gott og einfalt.

Aðilar stefna að því að styðja hver annan í að efla heilbrigðar lífsvenjur og ná betur til almennings með hvatningu og leiðbeiningar í átt að heilsusamlegu mataræði.

Með samræmdum skilaboðum og gagnvirku efni, svo sem uppskriftum, hvatningu, leiðbeiningum og áskorunum er leitast við að auka þátttöku og virkni einstaklinga.

Samstarfið miðar jafnframt að því að bjóða hagnýtar og aðgengilegar lausnir þar sem efni frá Gott og einfalt nýtist félagsmönnum aðildarfélaga LEB til að styðja við orku, endurheimt og hollustu í daglegu lífi.

Með því að tengja saman hreyfingu og næringu vilja aðilar styrkja jákvæða og skýra heildarmynd heilsueflingar, þar sem áhersla er lögð á að lítil, dagleg skref geti haft veruleg áhrif á heilsu og vellíðan.

Next
Next

Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn