Hreyfidagatalið „Æfing dagsins“ gefið út með styrk frá LEB

Höfundar hreyfidagatalsins, sjúkraþjálfararnir Hildur Aðalbjörg Ingadóttir og Svandís Björk Guðmundsdóttir

Hreyfidagatalið „Æfing dagsins“ er þróað af sjúkraþjálfurunum Hildi Aðalbjörgu Ingadóttur og Svandísi Björk Guðmundsdóttur fyrir hönd Félags sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu og nýtur stuðnings Landssambands eldri borgara, Félags sjúkraþjálfara og Farsællar öldrunar – þekkingarmiðstöðvar.

Hugmyndin að verkefninu kviknaði út frá þörf sem höfundar hafa orðið varir við í starfi sínu með eldra fólki. Sá hópur sem hreyfir sig minnst – og er jafnframt viðkvæmastur fyrir færniskerðingu, byltum og heilsufarslegum hnignun – á oft erfiðast með að hefja hreyfingu.

Markmiðið var að skapa leið sem byggir á þeirri hugmynd að lítil hreyfing á hverjum degi getur haft veruleg jákvæð áhrif til lengri tíma.

Með hreyfidagatalinu er leitast við að lækka þröskuldinn inn í hreyfingu með því að bjóða upp á eina einfalda æfingu á dag, sem er byggð á faglegri þekkingu og vísindalegum grunni sjúkraþjálfunar. Þannig fá notendur örugga og raunhæfa leið til að auka hreyfingu smám saman og á eigin forsendum.

Um er að ræða A5 gormabók sem er sett upp eins og dagatal, þar sem hver dagur inniheldur eina æfingu með skýrum leiðbeiningum og myndum. Boðið er upp á auðveldari og erfiðari útfærslur til að mæta mismunandi getu notenda. Dagatalið er margnota og hægt að nota ár eftir ár án þess að þörf sé á sérstökum búnaði.

Skipulag æfinga tekur mið af mikilvægustu forvarnarþáttum í öldrunarþjónustu, með áherslu á styrk og jafnvægi sem lykilþætti í að draga úr byltuhættu og viðhalda færni. Auk þess eru æfingar sem styðja við liðleika, samhæfingu, slökun og andlega heilsu.

Vikunni er skipt eftirfarandi:

  • Mánudagur - styrkur

  • Þriðjudagur – jafnvægi

  • Miðvikudagur - styrkur

  • Fimmtudagur - liðleiki/úthald/fræðsla/heilaleikfimi

  • Föstudagur - styrkur

  • Laugardagur - jafnvægi

  • Sunnudagur - teygjur/slökun/nudd/raddþjálfun

Hægt er að kaupa eintök af Hreyfidagatalinu á vef LEB og sækja á opnunartíma skrifstofu, virka daga, milli kl 9:00 og 12:00.

Hvert eintak kostar 9.900 kr.

Sjá nánar um dagatalið hér

Next
Next

Ályktun frá LEB vegna komugjalds í sjúkraþjálfun