Helgi Pétursson - Minning
Helgi Pétursson, formaður LEB 2021- 2025.
Helgi Pétursson fyrrverandi formaður Landssambands eldri borgara lést á líknardeild Landspítalans aðfararnótt 13. nóvember síðastliðinn.
Helgi kom víða við á langri starfsævi eins og alþjóð veit. Við þekktum hann öll sem Helga í Ríó (Tríó) og hann var dáður sem tónlistarmaður fram eftir öllum aldri.
Helgi lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1970 og starfaði við kennslu í nokkur ár. Einn helsti starfsvettvangur Helga, samhliða tónlistinni var blaðamennska og þar fann hann sig vel. Hann tók einnig virkan þátt í stjórnmálum og sat í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Reykjavíkurlistann í átta ár.
Árið 2021 var Helgi kosinn formaður Landssambands eldri borgara og sinnti því starfi af trúmennsku og þeirri baráttugleði sem einkenndi hann alla tíð. Hann var öflugur talsmaður eldri borgara og það er sjónarsviptir af Helga á þeim vettvangi. Við sem störfuðum með honum minnumst hans með mikilli hlýju enda var hún sá eiginleiki Helga sem stóð upp úr í öllum samskiptum við hann.
Fjölskyldu hans, vinum og fyrrverandi samstarfsfélögum sendum við hugheilar samúðarkveðjur.