Góður fundur með nýjum Félags- og húsnæðismálaráðherra

Frá vinstri: Björn Snæbjörnsson, Sigurður Ágúst Sigurðsson, Ragnar Þór Ingólfsson og Oddný Árnadóttir

Fulltrúum Landssambandsins (LEB) var boðið á fund með Félags- og húsnæðismálaráðherra, þriðjudaginn 17. febrúar sl. Á fundinn mættu Björn Snæbjörnsson formaður LEB, Sigurður Ágúst Sigurðsson varaformaður LEB og Oddný Árnadóttir framkvæmdastjóri LEB. Við fengum afar góðar móttökur eins og venjulega í ráðuneytinu. Það var ánægjulegt að hitta nýjan ráðherra svo fljótt eftir að hann tók við embætti. Fundurinn var hugsaður til að kynna okkur og fara yfir þau mál sem voru rædd við Ingu Sæland í desember sl. Mikill og góður hljómgrunnur er á milli okkar um þau málefni sem brenna mest á okkur og þar er nærtækt að benda á fumvarp til laga um vísitölutengingu lífeyris. Það er afar mikilvægt að sporna við frekari gliðnun milli lágmarks launa og lágmarks lífeyris. Ráðherra benti einnig á þann kraft sem hefur verið settur í uppbyggingu hjúkrunarheimila og jafnframt að einnig sé á teikniborðinu að fjölga húsnæðisúrræðum svo sem leiguíbúðum fyrir eldri borgara í samstarfi við óhagnaðardrifin félög.

Við minntum ráðherrann á að við höfum ekki fengið svör við umsóknum okkar um styrki, hvorki rekstrarstyrk fyrir þetta ár né verkefnastyrki svo sem í stafræna vegferð eldri borgara sem er gríðarlega mikil þörf fyrir. Okkur var tjáð að sú afgreiðsla sé á lokametrunum og við munum fá svör á næstu dögum.

Next
Next

LEB styður frumvarp um vísitölutengingu grunnlífeyris