Fundur með Heilbrigðisráðherra

Fulltrúar LEB áttu einstaklega góðan fund með Heilbrigðisráðherra þann 27. maí sl.

Á fundinn mættu varaformaður LEB, Sigurður Ág. Sigurðsson og framkvæmdastjóri LEB, Oddný Árnadóttir. Því miður komst formaðurinn okkar, Björn Snæbjörnsson, ekki á fundinn þar sem flug frá Akureyri var fellt niður.  

Umræðuefnin voru:

·      Endurskoða greiðsluþátttöku vegna heyrnartækja með það að markmiði að lækka kostnað notenda.

·      Skoða aukna niðurgreiðslu eða sérstök stuðningsúrræði vegna augnaðgerða fyrir eldri borgara.

·      Meta möguleika á greiðsluþátttöku vegna gleraugna/sjóntækja og tryggja að reglur taki mið af fjárhagsstöðu einstaklinga.

·      Þagnarskylda lækna og hjúkrunarfólks

Ráðherra voru sýndar tölur með samanburði á kostnaði við heyrnartæki á Íslandi, Noregi og Danmörku. Þar kemur berlega í ljós að það hallar mjög á okkar notendur miðað við hin Norðurlöndin. Kostnaður við heyrnartæki fyrir eldri borgara í Noregi er alveg felldur niður og í Danmörku er niðurgreiðslan veruleg þannig að eigin kostnaður hleypur bara á tugum þúsunda, meðan hann er talinn í hundruðum þúsunda hér á landi. Ráðherrann sagði að þetta vandamál væri mikið rætt og þar sem fulltrúi Sjúkratryggingar var á fundinum gat hún upplýst okkur um að þetta er í skoðun hjá þeim. Það er verið að leita leiða til að gera samstarfssamninga um innkaup á þessum tækjum og fleiri leiðir eru í skoðun. Það er því von á að eitthvað verði að frétta af þessum málum á næstu mánuðum eða misserum.

Ráðherra gat jafnframt upplýst okkur um að mikil pressa er á það að vinna niður biðlista eftir augnaðgerðum og ýmsar leiðir í skoðun þar. Einnig var komið inn á sérhæfð gleraugu og var ráðherra ánægður með að við leggjumst alls ekki á móti því að tengja svona niðurgreiðslur við tekjur.

Varðandi þagnarskylduna svaraði ráðherra því til að í raun veita lög heimild til heilbrigðisstarfsfólks til að tilkynna ef grunur vaknar um ofbeldi sem er talið ógna heilsu og/eða lífi sjúklinga. Það sem þarf að gera er að breyta verklagi og festa í sessi þá ábyrgð sem heilbrigðisstarfsfólk ber í svona málum. Ljóst er að við hjá LEB munum halda þessu á lofti og beita okkur fyrir bragarbót í þessum málum.

Next
Next

Skrifstofa LEB lokuð 1.-4. júní