Fundur með Félags- og húsnæðismálaráðherra

Sigurður Ágúst Sigurðsson, varaformaður LEB, Ragnar Þór Ingólfsson, Félags- og húsnæðismálaráðherra, Björn Snæbjörnsson, formaður LEB, Oddný Árnadóttir, framkvæmdastjóri LEB, Kolbeinn Gunnarsson, formaður kjaranefndar LEB.

Fulltrúar LEB áttu góðan fund með Félags- og húsnæðismálaráðherra, á bleika daginn 21. október.

Okkur var vel tekið eins og venjulega og fyrir fundi lágu þrjú mál sem við vildum leggja sérstaka áherslu á núna. Það eru þeir lífeyrisþegar sem minnst bera úr býtum, embætti umboðsmanns eldri borgara og fjárveitingar til LEB.

Formaður fór yfir þær upplýsingar sem við höfum frá Tryggingastofnun varðandi þann hóp sem hefur minna en kr. 400 þúsund í brúttó tekjur á mánuði. Einnig var farið yfir þann hóp sem er undir lágmarks launum í landinu. TR er að greina þennan hóp betur fyrir okkur og Ráðherra lagði til að við mundum hittast aftur til að fara yfir þær tölur þegar þær liggja fyrir í nóvember.

Samkvæmt stjórnarsáttmála var samþykkt að stofna embætti umboðsmanns eða hagsmunafulltrúa eldri borgara á kjörtímabilinu. Við óskuðum eftir viðbrögðum við þeirri kröfu okkar að ganga í það verkefni að setja þetta embætti á laggirnar. Ráðherra tók undir okkar málflutning og sagðist mundu bregðast við okkar málaleitan á næstunni.

Formaður fór yfir það hversu erfiðlega okkur gengur að halda sjó með þær litlu fjárveitingar sem ráðuneytið hefur skammtað okkur. Þetta stendur starfsemi LEB verulega fyrir þrifum. Við þurfum nauðsynlega að fjölga á skrifstofunni en það gengur ekki miðað við núverandi fjármögnun. Ráðherra nefndi að það væri því miður flókið að koma okkar samtökum inn á fjárlög en hvatti okkur til að sækja um rekstrarstyrk til tveggja ára, sem gæfi okkur alla vega einhvern fyrirsjáanleika.

Next
Next

Lokun skrifstofu LEB 15 og 16. október vegna fundahalda