Sigurbjörg Jónsdóttir
Sigurbjörg er fædd 9. ágúst 1950 í Keflavík og uppalin í Keflavík og Njarðvík. Hún flutti 1968 í Sveitarfélagið Voga ásamt eiginmanni. Sigurbjörg gekk í gagnfræðaskóla í 3 ár, einnig í húsmæðraskóla og hefur tekið séhæft skrifstofutækninám, ásamt ýmsum námskeiðum. Sigurbjörg vann hjá skattstofu Reykjaness í 15 ár. Hún og eiginmaður hennar ráku einnig eigið fyrirtæki í mörg ár. Hún byrjaði í félagsstörfum 2014 í stjórn hjá FEB í Vogum, varð síðar gjaldkeri og formaður í 2 ár. Gerðist stjórnarmaður hjá FEB Suðurnesja 2019 og gjaldkeri síðastliðin 4 ár. Sigurbjörg var í öldungaráði suðurnesjabyggða í nokkur ár og í öldungaráði Suðurnesjabæjar og Voga frá upphafi árið 2020. Áhugamálin hafa verið ýmiskonar, fjallaferðir ásamt allavega ferðlögum, siglingar á seglbátum og hraðbátum, einkaflug ásamt ýmsu öðru.