Sigurbjörg Gísladóttir

Sigurbjörg er fædd á Selfossi 1948 en ólst upp í Vestmannaeyjum þar til hún flutti til Reykjavíkur 1963. 1968 til 1975 var hún búsett í Noregi og stundaði nám við Háskólann í Osló og lauk þaðan Cand. Real. prófi í lífrænni efnafræði. Sigurbjörg hefur búið og starfað í Reykjavík frá árinu 1976, meðal annars sem verkefnastjóri, forstöðumaður Stjórnsýslusviðs, forstöðumaður Eiturefna og hollustuháttasviðs og sérfræðingur við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Hún var varaformaður í stjórn FEB í Reykjavík og nágrenni 2020-2024. Sigurbjörg hefur setið í Öldungaráði Reykjavíkur, kjaranefnd FEB, fulltrúaráði og stjórn Leigufélags aldraðra og kjaranefnd LEB 2019-2020 og 2025. Hún hefur einnig verið trúnaðarmaður á sínum vinnustað, átt sæti í stjórn og nefndum hjá Félagi íslenskra náttúrufræðinga, orlofsnefnd BHM, nefndum á vegum Reykjavíkurborgar og stjórn Landsvirkjunar.