Magnús J. Magnússon.
Magnús er fæddur og uppalinn á Akureyri en flutti þaðan 16 ára gamall. Magnús er með próf frá Kennaraháskóla Íslands og Mastersgráðu í stjórnun menntastofnana. Hann starfaði sem kennari og skólastjórnandi í 49 ár.
Magnús hefur verið afar virkur í félagsstörfum í gegnum tíðina, bæði sem tengjast störfum hans og áhugamálum. Hann er formaður FEB á Selfossi og hefur verið í stjórn LEB frá 2021, fyrst sem varamaður og síðan sem aðalmaður frá vori 2025.
Áhugamál Magnúsar eru leiklist áhugafélaga og unglingaleikhópa og hefur hann sett upp og frumsýnt gífurlegan fjölda leikverka og jafnframt samið þau flest.