Kolbeinn Gunnarsson

Kolbeinn er fæddur 1956 í Hafnarfirði. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Flensborgarskóla 1973. Kolbeinn vann hjá flutningadeild ÍSAL í 18 ár. Hann hóf störf á skrifstofu Verkamannafélagsins Hlífar árið 1995, var kosinn varaformaður, gjaldkeri og síðar formaður 2002-2022. Hann var lykilmaður í mótun og uppbygginu starfsnáms í stóriðjum, á vegum Hlífar og trúnaðarráðs Ísal, í starfsmentamálum fyrir ófaglærða 1993-1997. Kolbeinn hefur átt sæti í miðstjórn ASÍ, framkvæmdastjórn Starfgreinasambandsins, Lífeyrissjóðnum Framsýn, Lífeyrissjóðnum Gildi, starfsgreinaráði, Sameignarfélagi Ölfusborga, Starfsafli, Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar og Atvinnuleysistryggingarsjóði. Hann kom að stofnun Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar fyrir Hlíf, sat þar í stjórn og var formaður 2008-2020. Kolbeinn hefur átt sæti í kjaranefnd LEB frá árinu 2024 og formaður nefndarinnar frá 2025.