Guðrún Benediktsdóttir
Guðrún er fædd á Fáskrúðsfirði árið 1951 og hefur búið á Austfjörðum alla ævi. Hún starfaði ásamt manni sínum við búskap á Þrándarstöðum í Eiðaþinghá þar sem þau bjuggu með sauðfé, kýr og fiskeldi. Auk þess hefur hún sinnt ýmsum þjónustustörfum meðfram bústörfum.
Guðrún hefur verið virk í félagsstörfum. Hún er m.a. fyrrverandi stjórnarmaður og formaður FEB á Fljótsdalshéraði og hefur setið í stjórn Kvenfélags Eiðaþinghár.
Áherslur Guðrúnar eru samstaða og samheldni.