Ásgerður Pálsdóttir

Ásgerður er fædd og uppalin á Vopnafirði en hefur búið í Austur Húnavatnssýslu í hálfa öld. Lengi vel rak hún, ásamt eiginmanni sínum, blandað bú að Geitaskarði í Langadal en þau hættu búrekstri að mestu í kringum síðustu aldamót. Einnig ráku þau ferðaþjónustu á bænum.

Ásgerður var formaður Stéttarfélagsins Samstöðu í Húnavatnssýslum í 15 ár, frá 2001-2016. Hún var kosin formaður Félags eldri borgara í Húnaþingi árið 2017 og hefur verið það síðan. Hún starfaði í kjaranefnd LEB frá 2018 til 2024. Frá 2022 hefur hún verið í stjórn LEB, fyrst sem varamaður og síðan sem aðalmaður frá apríl 2025.