Margrét Halldórsdóttir

Margrét er fædd í Reykjavík 1951, en hefur lengst af búið í í Kópavogi. Hún útskrifaðist frá Hjúkrunarskóla Íslands 1974, starfaði við hjúkrun á Landspítalanum og var flugfreyja hjá Icelandair til fjölda ára. Í dag starfar Margrét á Landakoti en er einnig virk í félagsmálum. Hún er félagi í Soroptimistaklúbbi Kópavogs og Rótarýklúbbnum Borgum í Kópavogi, sat í stjórn Rauða Kross deildar Kópavogs um tíma og kenndi skyndihjálp í nokkur ár. Margrét hefur verið fararstjóri fyrir Úrval-Útsýn með hópa Úrvalsfólks. Hún hefur starfað með FEB í Kópavogi frá 2023 og hún var formaður frá 2023-2025. Margrét á sæti í varastjórn FEBK og hefur verið í varastjórn LEB frá 2024.