Fréttir úr starfsemi okkar
Landsfundur LEB 2024 verður haldinn þann 14. maí á Hótel Reykjavík Natura (gamla Loftleiðahótelinu).Þessi frétt er uppfærð jafnt og þétt fram að Landsfundi LEB samkv. lögum LEB.Fylgist reglulega með nýjum tíðindum í aðdraganda Landsfundar með því að smella á hnappinn: „Lesa meira"
Björn Snæbjörnsson: Við erum sterk og viljum berjast fyrir okkar málstað
„Um síðustu áramót hækkaði hámarksgreiðsla frá TR um kr. 17.669 en lágmarkshækkun í núverandi kjarasamningum var kr. 23.750. Þarna vantar upp á kr. 6.081 til þess að hækkunin verði sú sama og samið var um í kjarasamningunum.Munur á lægsta taxta á vinnumarkaði sem er í dag kr. 425.985 og ellilífeyri hjá TR sem er í dag kr. 333.194 mismunurinn er hvorki meiri né minni en kr. 92.791."
Kári Jónasson: Eldri borgarar fá lítið út úr kjarasamningunum
Kári Jónasson skrifar pistilinn:„Nú er það svo að fyrir þessa kjarasamninga var rætt við fulltrúa verkalýðssamtaka og forystumenn verkalýðshreyfingarinnar um að muna nú eftir "garminum honum Katli", en það hefur greinilega ekki borið árangur. Eldri borgarar eiga ekki fulltrúa við kjarasamningaborðið, og verða bara að taka því sem þeim er skammtað úr hnefa. Það eru allt of margir í okkar hópi sem sannarlega ættu betra skilið, en líka margir sem hafa vel til hnífs og skeiðar."
Viðar Eggertsson: Það sem Vilhjálmur ætti að vita
Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB skrifar pistilinn:„Fram að lagabreytingunni 1. jan. 2017 var ellilífeyrir frá almannatryggingum fyrsta stoðin. Réttur til ellilífeyris frá almannatryggingum var hugsaður sem áunnin réttindi þeirra sem hafa verið á vinnumarkaði í 40 ár eða lengur og skilað sínu til ríkis og sveitarfélaga alla sína hunds- og kattartíð."
Fundur formanna á Suðurlandi með ráðherra og þingmönnum
Í febrúar boðaði Magnús J. Magnússon formaður Félags eldri borgara á Selfossi alla formenn félaga eldri borgara á Suðurlandi á fund á Selfossi. Einnig voru Helgi Pétursson, formaður LEB og Þorbjörn Guðmundsson formaður kjaranefndar LEB boðaðir á fundinn. Einnig þáðu boðið dómsmálaráðherra og nokkrir aðrir þingmenn Suðurkjördæmis.
Ásdís Ólafsdóttir: Er eldra fólk óþarfi?
Ásdís Ólafsdóttir, varaformaður FEBRANG – Félag eldri borgara í Rangárvallasýslu:„Hver á þá að taka 4. vaktina!- Sækja í leikskólann.- Vera til staðar á Starfsdögum skólanna.- Skutla og sækja í tómstundir.- Baka afmæliskökuna.- Taka vaktina þegar börnin eru lasin og þurfa að vera heima."