fbpx

Hér gefur að líta stoltan hóp leiðbeinenda og nemenda í tæknilæsi. Fyrsti hópurinn hefur verið útskrifaður og eru allir alsælir með námskeiðið.

 

Tæknilæsi fullorðinna hófst sem hugmynd mæðginanna Hugins og Rannveigar. En þau starfa bæði hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar í félagsstarfi fullorðinna. Verkefnið hefur þróast eins og fílar í leiðangri því fljótlega bættist Frans við með þeim sem einnig starfar hjá félagsstarfi hjá Velferðarsviði.

 

Síðar komu með þeim í verkefnið þau Úlfur og Gunnhildur hjá Skema í HR og fékk hópurinn stuðning, leiðsögn og styrk hjá Guðrúnu Jóhönnu sem sér um endurhæfingu í heimahúsi og svo Velferðartæknismiðjunni. Hópurinn náði að halda eitt tilrauna námskeið fyrir tíu forvitna einstaklinga í Dalbrautarþorpinu. Gekk þetta fyrsta námskeið glimrandi vel og var búið að skipuleggja og undirbúa framhaldsnámskeið fyrir þann hóp, en þá skall á Covid faraldurinn.

Við þann faraldur varð samfélaginu mjög ljóst hversu gríðarlega mikilvægt það er að efla og bæta í tæknilæsi fullorðinna en mikið var um einangrun og einmannaleika meðal fólks í samkomubanninu, þá sérstaklega meðal aldraðra.

Því er það mjög ánægjulegt að ákveðið var að setja fullan kraft í að efla tæknilæsi fullorðinna þetta sumarið og fékkst til þess fjárstuðningur frá félagsmálaráðuneytinu. Tækjakaup og ráðningar hafa verið á fullu undanfarnar vikur og munu fyrstu hóparnir byrja í kennslu mánudaginn 22. júní 2020.

Ekki er þörf að eiga spjaldtölvu til að koma á námskeiðin en best er að koma með eigið tæki og læra á það. Stuðst verður við kennslubæklinga Landssambands eldri borgara og munu kennararnir vera með þá á námskeiðunum til sölu.

 

HÉR er hægt að lesa um tímasetningar og kennslustaði