fbpx

 

  • Athyglisverð leið til að nýta þekkingu og reynslu eftirlaunafólks.

Hugmynd um atvinnumiðlun fyrir eldra fólk hefur verið til skoðunar á Húsavík. Þetta er hugmynd að sænskri fyrirmynd, þar sem eftirlaunafólk getur skráð sig og tekið að sér afmörkuð verkefni tímabundið. Hugmyndin er að nýta þekkingu þess og verkkunnáttu og vinna í leiðinni gegn einmanaleika þeirra sem eldri eru. Hugmyndin hefur hlotið heitið Starfatorg og er meiningin að félag eldri borgara, verkalýðsfélagið á Húsavík og Vinnumálastofnun Norðurlands eystra vinni að verkefninu saman.

Komast út í samfélagið og veikindi og þunglyndi minnkar

„Hugsunin að baki Starfatorginu er að sýna að þó fólk sé komið á ákveðinn aldur, þýði það ekki að það geti ekkert gert lengur. Fólk hefur kannski verið í atvinnulífinu í mörg ár, makinn er fallinn frá og það er einmana,“ segir Brynja Sassoon sem kynntist svipuðu verkefni í Svíþjóð á meðan hún bjó þar. „Margir, sérstaklega karlar, kenna sig við vinnuna og hún skiptir miklu máli í lífi fólks. Mér finnst að við eigum að nýta þekkingu og kunnáttu þessa fólks eins mikið og mögulegt er. Fólk kemst þannig út í samfélagið aftur og veikindi og þunglyndi minnkar. Það fær greitt fyrir störf sín eins og allir aðrir. Fyrir mér snýst þetta mikið um lífsgæði fólks sem er komið á þennan aldur.“

Brynja segist hafa byrjað að hugsa um þetta þegar hún vann á hjúkrunarheimili í Svíþjóð. Þar voru hjón, og konan var í hjólastól eftir heilablóðfall. Eiginmaðurinn hugsaði um hana, fór með hana út að ganga og í búðir. Svo veiktist hann af lungnabólgu. „Þegar hann var orðinn nokkuð góður aftur, var þetta verkefni tekið af honum. Ég sá hvernig hann eltist og varð gamall á nokkrum mánuðum og tengdi það við að honum fyndist ekki þörf fyrir sig lengur,“ segir Brynja.

Hver og einn ræður hversu mikið hann vinnur

Svíar eru með vinnumiðlun fyrir eldra fólk, Veteran poolen. Þar getur fólk, sem vill vinna, skráð sig og síðan geta einstaklingar og fyrirtæki leitað til vinnumiðlunarinnar, vanti þau fólk í ákveðin verkefni. Þetta byggist á ákveðnum skattareglum sem ekki eru fyrir hendi hér. Starfatorgs-hugmyndin byggist einnig á því að fólk skrái sig þar og að fyrirtæki geti leitað eftir fólki í ákveðin verkefni, en ekki einstaklingar. „Menn skrá sig á Starfatorgið og farið er yfir hvað þeir hafa gert áður og hvað þeir kunna. Sá sem skráir sig til vinnu ræður því hvenær hann vinnur og hversu mikið. Sumir vilja kannski vinna hálfan dag einu sinni í viku, aðrir geta hugsað sér að vinna tvo daga og svo framvegis. Menn geta unnið sér inn 100 þúsund krónur á mánuði án þess að það skerði greiðslur frá Tryggingastofnun. Einstaklingur frá Starfatorgi fer svo á vinnustaðinn, stimplar sig inn og skilar sinni vinnu. Starfatorgið myndi sjá um að rukka inn fyrir hana,“ segir Brynja.

Brynja segir að félagsþjónustan hafi sýnt þessu áhuga. „Eldra fólk, sem er eitt heima, vill ef til vill heldur skipta við eldra fólk en fá sautján ára strák til að baða sig,“ segir hún. Þá vanti hugsanlega fólk á leikskóla eða í þjónustu við fatlaða, þegar ekki tekst að fá yngra fólk til dæmis til afleysinga.

Brynja Sassoon

 

Mikið af toppfólki sem getur gert margt

Félag eldri borgara á Húsavík tekur hugmyndinni vel. „Þegar málið var kynnt fyrir okkur í haust fannst okkur þetta mjög snjöll hugmynd,“ segir Lilja Skarphéðinsdóttir formaður félagsins. „Það er ótrúleg þekking sem býr í fullorðnu fólki sem er hætt að vinna og hún gæti komið sér vel í þessum störfum.“

Stéttarfélagið Framsýn var einnig jákvætt. „Þetta er mjög spennandi hugmynd. Það er svo mikið af flottu eldra fólki á Húsavík sem er við topp heilsu og getur gert svo margt. Allir sem málið hefur verið kynnt fyrir hafa tekið henni vel,“ segir Aðalsteinn Á. Baldursson formaður félagsins. Hann telur þó að Starfatorgið þurfi að vera á nokkuð stóru svæði til að það gangi upp og vísar því á bug að með þessu sé verið að taka vinnu af öðrum. Þá hafi hann tékkað á því hjá tryggingafélögunum hvernig þau tækju á þessu og þau telja að þetta geti gengið upp. Hann segist sjá fyrir sér að þetta myndi virka vel, til dæmis á höfuðborgarsvæðinu. „Fyrst þetta gengur vel í Svíþjóð ætti það að geta gengið hér líka.“

Góð hugmynd fyrir fullfrískt fólk utan vinnumarkaðar

Soffía Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra, segir þetta frábæra hugmynd. „Það að fyrirtæki, sem vanti skyndilega starfsmann tímabundið, geti leitað til slíkrar vinnumiðlunar. Þá getur fólk slegið til og stokkið í störf með stuttum fyrirvara,“ segir hún. Á sameiginlegum fundi á Húsavík var rætt um aðkomu Vinnumálastofnunar sem var tvíþætt. Annars vegar að greiða ráðningarstyrk fyrir þann einstakling sem vildi þróa þetta úrræði, en viðkomandi yrði þá starfsmaður Framsýnar. Hins vegar með því að beina einstaklingum í atvinnuleit í úrræðið, en atvinnuleitendur geta tekið að sér tilfallandi vinnu fyrir tæpar 74.000 krónur á mánuði án þess að bætur þeirra skerðist. Ekkert hefur gerst í málinu frá þessum tiltekna fundi, meðal annars vegna Covid, og þannig má segja að hugmyndin sé komin á ís, en hún er athyglisverð eigi að síður.

Aðalsteinn Baldursson

 

  • Greinin birtist fyrst í LEB blaðinu 2021