fbpx

 

Fræðslufundur ÖÍ – Öldrunarráðs Íslands og LEB – Landssambands eldri borgara, á RÚV.

Hverjar eru áskoranir eldri borgara og hvernig er hægt að eiga innihaldsríkt líf alla ævi?

ÖÍ og LEB standa fyrir fræðslufundinum, Velferð eldri borgara, á RÚV  þriðjudaginn 9. febrúar kl. 13.00 – 15.00, þar sem víðtæk fræðsla og upplýsingamiðlun verður höfð að leiðarljósi.

 

Með því að smella HÉR er hægt að horfa á þáttinn. 

Upptakan verður aðgengileg til 9. febrúar 2021

 

 

ÖÍ hefur árlega staðið fyrir ráðstefnu um málefni sem varða eldri borgara. Á kórónuveirutímanum hefur ekki verið hægt að halda slíka ráðstefnu. En ÖÍ lét ekki fallast hendur heldur ákvað í samvinnu við LEB – Landssamband eldri borgara að finna leið til að ná til breiðs hóps þeirra sem eru komnir af léttasta skeiði,; hóps sem er orðinn fimmtungur þjóðarinnar og fer stækkandi.

Úr varð að halda fræðslufund í samstarfi við RÚV. Þar með gafst einstakt tækifæri til að tengjast eldri borgurum um allt land, þar sem samkomutakmörk og fjarlægðir setja engin takmörk. Það er von ÖÍ, LEB og RÚV að fræðslufundurinn nái til sem flestra eldri borgara og aðstandenda þeirra.Enda er dagskrá fræðslufundarins einstaklega fróðleg og áhugaverð.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flytur opnunarávarp. Fundarstjóri er Jórunn Frímannsdóttir, formaður Öldrunarráðs Íslands.

Fræðlufundurinn byggist upp á fjölbreyttum erindum fólks sem hefur látið málefni eldra fólks sig varða á ýmsum sviðum samfélagsins:

  • Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri öldrunarmála á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar: Frá því að þörf skapast fyrir þjónustu – Þjónustukeðjan.
  • Halldór S. Guðmundsson, framkvæmdastjóri öldrunarheimila Akureyrar, dósent HÍ: Velferðartækni – tengsl og traust.
  • Benedikt Jóhannesson, tryggingastærðfræðingur: Nýtum allar vinnufúsar hendur og heila.
  • Bjarni Karlsson, sálgætir og siðfræðingur: Er elli innri maður?
  • Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir, öldrunarlækningadeild Landspítala, prófessor í öldrunarlækningum, læknadeild Háskóla Íslands: Heilsufar á efri árum og umbætur í öldrunarþjónustu.
  • Ólöf Guðný Gerisdóttir, næringarfræðingur og dósent HÍ: Matur og hreyfing – undirstaða heilbrigðis.
  • Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB: Lifum lífinu lifandi.

Í lokin stýrir Jórunn Frímannsdóttir pallborðsumræðum með þeim Halldóri, Ólöfu Guðnýju, Pálma og Þórunni.

Verið stillt á RÚV þriðjudaginn 9. febrúar kl. 13.00 – 15.00!