fbpx

Rauði krossinn hefur stofnað sjóð sem veitir neyðarstyrki til þeirra sem búa við sárafátækt. Um tímabundið átaksverkefni er að ræða en með stofnun sjóðsins vill Rauði krossinn efla stuðning og vera málsvari þeirra sem búa við mikinn skort.

​Horft er til tekna og eigna til að meta rétt til styrks.​ Umsækjendur yngri en 18 ára eiga ekki rétt á styrk né námsmenn í lánshæfu láni hjá LÍN.

Fjárhæðir neyðarstyrks

  • Einstaklingar 40.000 kr. ​
  • Hjón og sambúðarfólk  50.000 kr. ​

Styrkur hækkar um 10.000 kr. fyrir hvert barn yngra en 18 ára sem er á forræði umsækjanda og á sama lögheimili og umsækjandi. ​

Hversu oft er hægt að fá úthlutun

Að hámarki er hægt að veita styrk til sama umsækjanda tvisvar sinnum yfir 12 mánaða tímabil. ​ Ekki verður veittur styrkur lengra aftur í tímann en tvo mánuði frá því að umsókn er lögð fram.​

Þú getur sótt um neyðarstyrk Rauða krossins ef þú uppfyllir eftirtalin skilyrði

  • Íslenska kennitölu
  • Lögheimili á Íslandi
  • Mánaðarlegar tekjur eru undir  200.000 kr.  (einstaklingar ) eða samanlagt undir 300.000 kr. (hjón/sambúðarfólk).
  • Eignir eru ekki umfram íbúðarhúsnæði og ein fjölskyldubifreið.
  • Búið að fullnýta rétt sinn til greiðslna frá félagsþjónustu sveitarfélaga, atvinnuleysissjóði og tryggingastofnun.

Ef þú fyllir ekki þau skilyrði getur þú skoðað önnur úrræði hér .
Senda má tölvupóst á adstod@redcross.is til að fá frekari upplýsingar eða aðstoð við skil á umsókn.