LEB hefur fundið fyrir vaxandi þörf margra eldri borgara sem ekki hafa verið tölvuvæddir að hafa handhægt kennsluefni sem myndi nýtast þeim til að komast í rafrænt samband við umheiminn.
Enda er tölvulæsi orðið ómissandi þáttur í ýmsum samskiptum, hvort sem er manna í millum eða við opinberar stofnanir. Tölvur eru í mismunandi formum: Borðtölvur, spjaldtölvur, fartölvur… Jafnvel nýjustu símar eru orðnir fyrirtaks.
Í haust réðst LEB í að vinna að málinu og fékk Oddnýju Helgu Einarsdóttur til að taka saman kennsluefni, í sitt hvort ritið, fyrir Ipad annars vegar og Android stýrikerfi hins vegar. Android er í nánast öllum tölvum sem ekki eru af Ipad gerð.
Kennsluefnið er í bæklingum af A4 stærð og ríkulega skreyttir leiðbeininga myndum. Þar er farið skref fyrir skref um ýmsa grunnþætti spjaldtölvunnar, eins og t.d.:
- Almenn virkni
- Uppsetning
- Skjárinn
- Lykilorð
- Stöðuborð
- Lyklaborð
- Að skipta um bakgrunn
- Tengjast interneti
- Myndavél
- Vafri
- Sækja forrit
- Tölvupóstur
- Kort
- Uppfærslur
Bæklingarnir, Ipad og Android, bjóðast félagsmönnum LEB, sem eru félagsmenn allra félaga eldri borgara um allt land á afsláttarverði: 800 kr. fyrir eintakið.
Almennt verð er 1.000 kr. fyrir eintakið
Pantanir sendist á netfangið leb@leb.is
Ásamt þessum upplýsingum:
– Eintakafjöldi og þá af hvorri gerð bæklings
– Nafn viðtakanda, heimilisfang og kennitala.
Ef greiðandi er annar en viðtakandi þá þarf að taka fram:
– Nafn hans, heimilisfang og kennitölu
Við póstsendum hvert á land sem er. Póstburðargjöld eru greidd af LEB.
Við mælumst til að einstaklingar sem kaupa af okkur bæklinga gegnum netið millifæri á reikning okkar:
– Kennitala: 6009894059
– Bankanr.: 0516-26-013888
Senda kvittun úr heimabanka á netfangið leb@leb.is
Félagsmálaráðuneytið styrkti útgáfuna.