fbpx

Hætt verður um áramótin að innheimta komugjöld af öryrkjum og öldruðum í heilsugæslu og hjá heimilislæknum hvort heldur er á dagvinnutíma eða á öðrum tímum sólarhringsins. Gjald fyrir vitjanir lækna til aldraðra og öryrkja verður einnig fellt niður. Eftir sem áður verða ekki innheimt komugjöld hjá börnum að 18 ára aldri.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti þetta og haft er eftir henni í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu að ákvörðuninni sé ætlað að styrkja heilsugæsluna:

„Þetta er mikilvæg aðgerð og liður í stefnu stjórnvalda um að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu og auka á móti framlög hins opinbera. Þetta er einnig í samræmi við þá áherslu að efla hlutverk heilsugæslunnar sem fyrsta viðkomustaðar fólks í heilbrigðiskerfinu.“

Þak var sett á heildarútgjöld sjúklinga og ýmsar aðrar breytingar gerðar varðandi greiðsluþátttöku fólks fyrir heilbrigðisþjónustu með nýju greiðsluþátttökukerfi árið 2017. Þessi breyting hefur lækkað verulega útgjöld þeirra sem mest þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda og stuðlað að auknum jöfnuði meðal notenda heilbrigðiskerfisins. Heildarútgjöld sjúklinga í nýja greiðsluþátttökukerfinu eru um 1,5 milljörðum króna lægri á ársgrundvelli en þau voru áður og lækka enn frekar með niðurfellingu komugjalda öryrkja og aldraðra um áramótin.

Komugjöld almennra notenda í heilsugæslunni verða óbreytt að krónutölu á nýju ári og taka því ekki hækkunum í samræmi við breyttar verðlagsforsendur.

Komur öryrkja í heilsugæsluna eru um 55.000 á ársgrundvelli og komur aldraðra um 107.500, miðað við tólf mánaða tímabil frá miðju ári 2017-2018.