Landsfundur LEB 2020 verður haldinn þriðjudaginn 30. júní í Súlnasal Hótel Sögu við Hagatorg, 107 Reykjavík. Fundargögn afhent kl. 10.00, fundurinn hefst kl. 10.30 og gert ráð fyrir að hann muni standa til kl. 18.00. Landsfundinn sitja fulltrúar allra aðildarfélaga LEB, félaga eldri borgara um allt land. Eingöngu fulltrúar félaganna með gilt kjörbréf útgefnum af […]
Fundur hjá starfshóp um lífskjör og aðbúnað aldraðra. Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fulltrúar LEB á fundinum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra lokatillögum í síðasta lagi vorið 2021 en starfshópnum er heimilt að […]
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, verður gestur þeirra Heimis og Gulla í þáttinum Í bítinu á Bylgjunni. Þar mun væntanlega verða rætt um nýlega afstaðinn Landsfund LEB sem haldinn var 30. júní sl. Óhætt er að segja að hann hafi verið kröftugur. Nýtt fólk var kjörið í nokkur stjórnarsæti og skorinorðar ályktanir voru samþykktar, svo eitthvað […]
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund með Þórunni Egilsdóttur deildarstjóra öldrunarmála hjá Reykjavíkurborg um verkefni velferðar á næstunni fyrir eldri borgara.
Skrifstofa LEB verður lokuð vegna sumarleyfa, frá fimmtudeginum 23. júlí til og með þriðjudeginum 4. ágúst. Í neyðartilvikum er hægt að senda póst á netfangið leb@leb.is Gleðilegt sumar!