fbpx

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Landsfundur LEB 2021 á Selfossi

26 maí 2021 @ 10:00 - 17:00

Landsfundur LEB verður að þessu sinni haldinn á Selfossi á Hótel Selfossi. LEB mun einnig njóta aðstoðar Félags eldri borgara á Selfossi við framkvæmd landsfundarins.

Dagskrá landsfundar samkv. lögum LEB:

1. Kosning tveggja fundarstjóra og tveggja fundarritara.
2. Niðurstaða kjörbréfanefndar.
3. Skýrsla stjórnar um starfsemi sambandsins í liðnu starfsári.
4. Ársreikningur lagður fram til umræðna og afgreiðslu.
5. Starfs- og fjárhagsáætlun næsta starfsárs kynnt.
6. Ákvörðun árgjalds.
7. Tillögur um starfshópa fundarins.
8. Málefnastarf.
9. Samantekt starfshópa, afgreiðsla ályktana og tillagna.
10. Lagabreytingar.
11. Kosningar:
      a) kosning formanns til tveggja ára.
b) kosning tveggja manna í stjórn  til tveggja ára.
c) kosning þriggja varamanna til eins árs. Verði sjálfkjörið skal röð varamanna koma skýrt fram.
d) kosning tveggja skoðunarmanna ársreikninga LEB og tveggja til vara, allra til eins árs.
e) kosning nefnda sem starfa milli landsfunda.
12. Önnur mál.

Stjórn er heimilt að fjölga dagskrárliðum svo sem um afmörkuð hagsmunamál aldraðra og ávörp gesta.

 

Details

Date:
26 maí 2021
Time:
10:00 - 17:00