fbpx

Jarðskjálftahrina gengur nú yfir á Reykjanesi og hafa höfuðborgarbúar og íbúar á Suðurnesjum fundið vel fyrir skjálftunum. Stærsti skjálftinn hefur mælst 5,6 að stærð og hafa margir eftirskjálftar komið í kjölfarið. Viðbúið er að grjóthrun geti orðið við þessar aðstæður og fólk er beðið um að hafa vara á undir bröttum hlíðum. Íbúar á suðvesturhorni landsins eru hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir vegna jarðskjálfta.

 

Á vef Veðurstofunnar má sjá upplýsingar um jarðskjálfta sem verða á landinu.

 

Hvað á að gera ef það verður jarðskjálfti?

For­varn­ir á heim­il­um eru mik­il­væg­ar þegar kemur að jarðskjálftum sem gera sjaldan boð á undan sér, til að minnka lík­ur á slys­um og tjón­um. Hér eru nokkur góð ráð:

Hvernig hugað skal að húsnæði:

  • Festið skápa, hillur og þunga muni í gólf eða veggi. Hafið hjól sem eru á húsgögnum alltaf í læstri stöðu. Ef engin læsing er á hjólunum, setjið þá ramma utan um hjólin til að koma í veg fyrir að húsgagnið fari af stað í jarðskjálfta. Munið hinsvegar að rammi eða læsing á hjólum kemur ekki í veg fyrir að húsgagnið velti
  • Látið þunga muni ekki vera ofarlega í hillum eða á veggjum nema tryggilega festa. Hægt er að nota kennaratyggjó til að tryggja að léttari munir færist ekki úr stað við jarðskjálfta
  • Festið kynditæki og ofna. Kynnið ykkur staðsetningu vatnsinntaks og rafmagnstöflu
  • Festið myndir og ljósakrónur í lokaðar lykkjur
  • Hafið þungan borðbúnað staðsettan í neðri skápum og skúffum og setjið öryggislæsingar eða barnalæsingar á skápahurðir til varnar að innihald þeirra falli út úr þeim
  • Fyrirbyggið að hlutir geti fallið á svefnstaði
  • Gangið vel frá niðurhengdum loftum og upphækkuðum gólfum
  • Byrgið glugga eða setjið öryggisfilmu á rúður til að koma í veg fyrir skæðadrífu glerbrota ef rúða brotnar. Látið rúm ekki standa undir gluggum ef hætta er á jarðskjálftum
  • Hlustið á tilkynningar og fyrirmæli sem gefin eru í útvarpi og munið: Krjúpa-skýla-halda

Ef þú ert innandyra þegar þegar jarðskjálfti byrjar– ekki hlaupa af stað:

  • Haltu kyrru fyrir, mörg slys verða þegar hlaupið er af stað
  • Farðu undir borð eða rúm og haltu þér í borð-  eða rúmfót
  • Krjúptu niður í horni við burðarvegg eða í hurðaropi við burðarvegg
  • Verðu höfuð þitt og andlit með kodda- ef þú vaknar upp við jarðskjálfta
  • Haltu þig frá gluggum – þeir geta brotnað
  • Láttu vita af þér með SMS þegar jarðskjálftinn hættir

Ef þú er utandyra þegar þú finnur jarðskjálfta – ekki hlaupa inn:

  • Vertu áfram úti
  • Ekki vera nálægt háum byggingum sem geta hrunið eða háum trjám
  • Grjóthrun, skriður og snjóflóð geta fallið úr hlíðum og fjalllendi
  • Raflínur geta verið hættulegar – varist að snerta þær
  • Reyndu að komast á opið svæði þar sem byggingar þrengja ekki að

Ef þú ert að keyra bíl þegar þú finnur jarðskjálfta:

  • Legðu bílnum og stoppaðu. Vegir og brýr geta skemmst í jarðskjálfta
  • Hafðu sætisbeltin spennt
  • Haltu kyrru fyrir í bílnum þar sem hann getur varið þig gegn brotum og braki sem fer af  stað í jarðskjálfta – hlustaðu á útvarpið, þar koma jafnan fyrstu upplýsingarnar um jarðskjálftann.