6. Febrúar 2012 | Fundur með fjármálaráðherrsa Þann 1. febrúar s.l. fékk Landssamband eldri borgara fund með fjármálaráðherra í Arnarhváli. Þar hittu þau Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Unnar Stefánsson og Eyjólfur Eysteinsson nýja fjármálaráðherrann Oddnýu Harðardóttur og aðstoðarmann hennar, Gunnar Tryggvason, til að ræða stefnumál og fjárhag LEB. Ráðherrann gaf sér góðan tíma til að kynna sér málefni landssambandsins. Aðalefni fundarins var að kynna fjárhagsstöðu sambandsins og eldri borgara. Kynnt voru þau bréf, sem farið hafa frá LEB s.l. haust og umsóknir um styrki. Síðasta umsókn var vega Evrópuárs aldraðra sem nú stendur yfir í ár. LEB hefur ákveðið að taka þátt í því að kynna stefnumál Evrópuársins með ráðstefnu 14. mars í samvinnu við Öldrunarráð og Velferðarráðuneytið. Áhersla er á virkni, heilsu og afkomu aldraðra, og að brúa bilið á milli kynslóða. Á fundinum var rætt vítt og breitt um öll þessi mál, og kom greinilega fram velvilji í okkar garð. Við í stjórn LEB teljum það skipta máli að eiga góð samskipt við stjórnvöld og kynna okkar stefnumál sem víðast. |
27. Desember 2011 | Yfirlýsing frá LEB
Í fréttum föstudaginn 23. desember var greint frá því að Kjararáðhefði úrskurðað að draga skuli til baka launalækkanir þinngmanna, ráðherra og embættismanna ríkisins sem komu til framkvæmda 1. janúar 2009. Í framhaldi af því ákvað framkvæmdastjórn LEB eð senda yfirlýsingu til fjölmiðla og var það gert á Þorláksmessu. Yfirlísingin var ekki meðhöndluð rétt allstaðar og hjá ríkisútvarpinu var meðhöndlun stofnunarinnar slík að yfirlýsingin nánast snerist upp í andhverfu sína. Hér á eftir fer yfirlýsingin eins og hún fór frá formanni LEB til fjölmiðla.
|
|
Lesa meira...
|
16. Nóvember 2011 | Hjúkrunarheimili framtíðarinnar - heimilisfólk, aðbúnaður, þjónusta.
Landssamband eldri borgara, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, Rannsóknarstofnun í barna og fjölskylduvernd og Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu
bjóða til málþings þriðjudaginn 22.nóvember kl. 13:30 - 16:00 á Grand Hótel Reykjavík
Þátttökugjald er 2.900,- en 1.500, - fyrir lífeyrisþega (kaffi og meðlæti innifalið)
Skráning HÉR
|
|
Lesa meira...
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|