fbpx

Vopnafjörður, Seyðisfjörður, Fljótsdalshreppur, Fljótsdalshérað, Djúpivogur.is, Fjarðabyggð, Borgarfjörður eystri, LEB – Landssamband eldri borgara, Öldrunarráð Íslands og Heilbrigðisráðuneytið standa að framtíðarþingi um farsæla öldrun í Valaskjálf, Egilsstöðum, fimmtudaginn 10.október kl. 15 – 18.

Markmið þingsins:
* Skapa umræðu meðal áhugasamra um öldrunarmál, væntingar og viðhorf til efri áranna.
* Vekja jákvæða athygli á eldri borgurum, stöðu þeirra og hvernig þeir lita á mál sín til frambúðar.

Óskað er eftir þátttakendum úr eftirfarandi hópum:
* 75 ára og eldri
* 55-75 ára
* 55 ára og yngri
* Starfsfólk sem tengist öldrunarmálum

Skráning:
Skráning sendist á netfangið oldrunarrad@oldrunarrad.is
eða í síma 414 9500 eigi síðar en kl. 12.00, þann 7. október n.k.
Taka þarf fram nafn, kennitölu og síma.

Þátttaka er öllum heimil og án endurgjalds.

Boðið verður upp á veitingar.