fbpx

Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið dagana 12.  – 15. júlí á Sauðárkróki. Eins og allir vita sem hafa tekið þátt í mótunum þá er þetta frábær blanda af íþróttakeppni og hreyfingu fyrir fólk á besta aldri sem vill njóta þess að vera saman. Mótið hefur farið fram árlega síðan 2011 og er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eru eldri.

Mótið í ár verður stærsta Landsmót UMFÍ 50+ frá upphafi því það er haldið samhliða Landsmótinu á Sauðárkróki, fjögurra daga íþróttaveisla fyrir fullorðna. Þar verður fólki boðið upp á að keppa í næstum 40 greinum, prófa ýmsar greinar og kynnast öðrum. Til viðbótar eru fyrirlestrar um eitt og annað tengt lýðheilsu alla mótsdaga.

Þátttökugjald er 4.900kr. til og með 15. júní 2018. Eftir 15. júní hækkar verðið upp í 6.900kr.