fbpx

Aðalfundur Félags eldri borgara í Garðabæ 4. mars 2019 samþykkti að mótmæla harðlega „þeim fáránlegu skerðingum sem viðgangast í almannatryggingakerfinu gagnvart lífeyri úr lífeyrissjóðum. Fundurinn skorar á stjórnvöld að endurskoða þessar skerðingar og færa til betri og réttlátari vegar.“

Á aðalfundi Félags eldri borgara í Reykjavík19. febrúar var samþykkt að styðja kröfu stéttarfélaga og sambanda innan Alþýðusambands Íslands um að „stigið verði ákveðið skref til  lækkunar á skerðingu  almannatrygginga úr 45% í 30% vegna lífeyris frá lífeyrissjóðum.“

Í ályktun Reykjavíkurfélagsins segir enn fremur:

Sú óréttláta skerðing sem viðgengst í dag á sér ekkert fordæmi í þeim löndum sem við berum okkur saman við og stuðlar að fátækt meðal eldri borgara og rýrir traust,á lífeyrissjóðum.

Einnig leggur fundurinn áherslu á að tryggður verði jöfnuður milli  lífeyrisþega gagnvart almannatryggingum, vegna lífeyris frá lífeyrissjóðum sem tilkominn er vegna skylduiðgjalds, hvort sem lífeyrir kemur úr samtryggingu eða séreign.

Fundurinn leggur allt  traust sitt á að ASÍ  fylgi kröfunni fast eftir í viðræðum við stjórnvöld og ekki verði hvikað frá henni fyrr en ásættanleg niðurstaða fæst.“