fbpx

Fundur með velferðarráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, í ráðuneytinu til að ræða málefni eldri borgara. Fundinn sátu Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB  og Sigurður Jónnson varaformaður LEB auk þess þrír starfsmenn ráðuneytisins.

Farið var yfir öll baráttumál Landsambandsins í málefnum eldra fólks. Þau eru ansi víðtæk og var auðfundið að mörg þeirra eiga góðan hljómgrunn í ráðuneytinu svo við erum bjartsýn á framhaldið. Mikil áhersla var af okkar hálfu á að enduskoða skerðingar og það sem þarf í síðasta al.tr. frumvarpi. Einnig voru miklar umræður um hjúkrunaheimilisskortinn og hvernig framkvæmdasjóður aldraðra hefur verið sveigður í rekstur í stað uppbyggingar. Mörg önnur velferðarmál voru rædd ýtarlega s.s. aukna heimaþjónustu og heimahjúkrun og fleiri úrræði heim  til að fólk fái góðað endurhæfingu. Málefni langveikra og umönnun veiks maka voru á dagskrá svo og að afnema lögbundin starfslok við 70 ára aldur. Sveigjanleg starfslok og auk leigu eldra fólks sem getur valdið alvarlegri fátækt.