Skipað hefur verið að nýju í kjaranefnd eins og venja er eftir Landsfund LEB. Fundurinn er haldinn í bækistöðvum LEB að Sigtúni 42. Á fundinum skipta nefndarmenn með sér verkum og hefja umræðuna um baráttuna fyrir betri kjörum eldri borgara. Kjaranefnd er skipuð: Aðalmenn Sigurður Björgvinsson, Hafnarfjörður Haukur Halldórsson, Akureyri Drífa Sigfúsdóttir, Reykjanesbær Jón Ragnar […]
Meðal gesta í viðtalsþættinum Sprengisandi á Bylgunni í umsjón Kristjáns Kristjánssonar sunnudaginn 6. desember kl. 10.00 - 12.00 er formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, þar sem hún mn ræða kjaramál eldri borgara og önnur mál þeim tengd. Viðtalið við hana er ráðgert kl. 11.30
Fundur um alþjóðlegt þverfaglegt net um snjallt, heilbrigt aldursvænt umhverfi sem unnið er af velferðarsviði Reykjavíkurb orgar af Íslands hálfu. Fjarfundinn sitja Roxana Cziker verkefnastýra og Þórhildur Guðrún Egilsdóttir forstöðukona öldrunarmála hjá Reykjavíkurborg auk formanns FEB-R Ingibjargar Sverrisdóttur og formanns LEB Þórunni Sveinbjörnsdóttir
Heilbrigðisráðherra efnir til vinnustofu um samráð með fjarfundarbúnaði um framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum til ársins 2030. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, flytur erindi og tekur þátt í vinnustofu og pallborði
Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra heldur fjarfund með formanni LEB Þórunni Sveinbjörnsdóttur, miðvikudaginn 16. desember kl. 10.30 þar sem fjallað verður um málefni eldri borgara.
Skrifstofan okkar verður í jólafríi (að mestu) frá miðvikudeginum 23. desember til og með sunnudeginum 3. janúar. Þó verðum við í netsambandi og hægt að senda okkur erindi á netfangið leb@leb.is og við svörum eftir bestu getu eins og endranær. Á nýju ári, mánudaginn 4. janúar, opnum við aftur og þá á nýjum stað. Við […]