Skrifstofa LEB verður lokuð vegna sumarleyfa, frá fimmtudeginum 23. júlí til og með þriðjudeginum 4. ágúst. Í neyðartilvikum er hægt að senda póst á netfangið leb@leb.is Gleðilegt sumar!
Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB verður sérstakr gestur á fundi almannavarna. Hún verður þar ásamt Þórólfi Guðmundssyni sóttvarnarlækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni.
Staða eldri innflytjenda er nú í skoðun hjá LEB, með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, heldur fund til að kanna stöðuna með Barböru Jean Kristvinsson og Guðrúnu Ágústsdóttur í bækistöðvum LEB.
Fundur hjá starfshóp um lífskjör og aðbúnað aldraðra. Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundur hjá undirhópi um félagsþjónustu Fundurinn er haldnirnn sem fjarfundir að þessu sinni til að mæta kröfum um sóttvarnir. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. […]
Samráðsfundur í boði heilbrigðis-, dómsmála- og forsætisráðherra. Nánar um fundinn: Heilbrigðisráðherra í samvinnu við forsætis- og dómsmálaráðuneytið efnir til samráðsfundar í formi vinnustofu 20. ágúst með lykilaðilum í samfélaginu um áframhaldandi aðgerðir vegna Covid-19 til lengri tíma litið. Efnt er til samráðsins í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Streymt verður beint frá fundinum sem markar upphaf […]
Fyrsti fundur nýrrar stjórnar LEB. Á þessum fyrsta fundi mun stjórnin m.a. skipta með sér verkum. Stjórnarfundurinn er haldinn í aðsetri LEB að Sigtúni 42. Eftir að fundargerð hefur verið rituð og samþykkt á næsta stjórnarfundi á eftir verður hún birt á vef LEB, eins og venjan er. Stjórn LEB: Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, Haukur Halldórsson, […]
Fundur hjá starfshóp um lífskjör og aðbúnað aldraðra. Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundur hjá undirhópi um heilbrigðisþjónustu Fundurinn er haldnirnn sem fjarfundir að þessu sinni til að mæta kröfum um sóttvarnir. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. […]
Fundur með fulltrúum island.is & heilsuvera.is. Markmiðið er að undirbúa náið samstarf við starfsmenn þeirra til að samræma handhægar og víðtækar upplýsingar er varða eldri borgara. Fyrir hönd LEB sitja fundinn Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður og Viðar Eggertsson skrifstofustjóri.
Staða eldri innflytjenda er nú í skoðun hjá LEB, með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, heldur fund til að kanna stöðuna með Barböru Jean Kristvinsson og Guðrúnu Ágústsdóttur í bækistöðvum LEB.
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund í félagsmálaráðuneytinu um málefni eldri nýbúa. Vegna nýrra laga sem munu taka gildi 1. nóvember. Í þeim kveður á stuðning við eldra fólk með skerta búsetu á Íslandi og hefur ekki notið ellilífeyris. Brýnt er að hafa upp á þessu fólki svo hægt sé að kynna þeim réttindi sín.