NPO er samráðsvettvangur norræna félaga eldri borgara í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Íslandi og Færeyjum. Fundað er að jafnaði tvisvar á ári. Að þessu sinni verður fundurinn í Finnlandi. Fyrir hönd Íslands sækja fundinn Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB og Haukur Halldórsson, varaformaður LEB.
NPO er samráðsvettvangur norræna félaga eldri borgara í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Íslandi og Færeyjum. Fundað er að jafnaði tvisvar á ári. Að þessu sinni verður fundurinn í Finnlandi og fundað í tvo daga, 30. og 31. október Fyrir hönd Íslands sækja fundinn Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB og Haukur Halldórsson, varaformaður LEB.
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, fundar með Kjaranefnd LEB & FEB sem í sitja: Haukur Halldórsson, varaformaður LEB, Akureyri, Sigurður Jónsson, Suðurnesjabær, Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær og Ólafur Örn Ingólfsson, Reykjavík
Fundur hjá starfshópnum að Jöfri, Skógarhlíð 6, Reykjavík. Fulltrúar LEB á fundinum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson.
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, fer í upptöku á þættinum Lífið er lag á Hringbraut í dag kl. 15.00. Þar mun hún ræða húsnæðismál og fasteignagjöld. Þátturinn verður á dagskrá fljótlega, en þeir eru á dagskrá alla þriðjudaga kl. 20.30.
Margt um að vera þennan Dag öldrunar 2019. Meðal annars er haldin ráðstefna á Grand hóteli: Heilsuefling frá vöggu til grafar. Uppsker ég eins og ég sái? FORVARNIR – ÞÁTTTAKA - ÞJÓNUSTA. Þar munu fjölmargir flytja stutt ávörp frá ýmsum sjónarhornum yfirskriftarinnar. Ráðstefnan hefst kl. 8.30 og lýkur kl. 15.15. Allir velkomnir!
Tryggingastofnun stendur fyrir opinni ráðstefnu þriðjudaginn 12. nóvember nk. á Grand Hótel Reykjavík kl. 9.00, þar sem athyglinni verður beint að stöðunni í lífeyrismálum, hvernig við stöndum okkur og hvernig við viljum haga lífeyrismálum til framtíðar. Ráðstefnan er öllum opin, Sjá nánar á vef TR, tr.is. Skráning er á vef TR. Dagskrá 9.00 Ásmundur Einar […]
Boðað er til heilbrigðisþings þann 15. nóvember frá klukkan 09:00 til 15:45 á Hilton Reykjavík Nordica. Meðal fyrirlesara í röð örfyrirlestra er formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir. Markmiðið með þinginu er að skapa vettvang fyrir kynningu og umræður um helstu gildi og siðferðilegar áherslur sem leggja beri til grundvallar við forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu. Mikilvægt er að […]
Fulltrúar LEB á fundinum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Á hann mun mæta m.a. fulltrúi verkefnastofu um stafrænt Ísland til að kynna þær hugmyndir sem eru í vinnslu hjá þeim. Fundurinn fer fram í húsnæði félagsmálaráðuneytisins í Loftsölum, Skógarhlíð 6.
LEB, Húseigendafélagið og Félag atvinnurekenda halda fund til að ræða hvernig best er að fylgja eftir ályktun sinni um lækkun fasteignagjalda. Fundurinn fer fram í Húsi verslunarinnar. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, sækir fundinn.
Öldungaráð Viðreisnar verður með opið hús þriðjudaginn 19. nóvember kl. 16:00 í húsnæði Viðreisnar, Ármúla 42 á 2. hæð. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, og Þorsteinn Víglundsson, alþingismaður og varaformaður Viðreisnar, verða með erindi um stöðu eldri borgara.
Fundurinn er opinn öllum. Fundurinn er haldinn í Borgarbókasafninu Menningarhús Gerðubergi, Gerðuberg 3-5, 111 Reykjavík. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, sækir fundinn. Dagskrá: Teitur Skúlason lögfræðingur og sérfræðingur í persónuvernd hjá Reykjavíkurborg mun fjalla um MÁP Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir deildarstjóri innkaupadeildar mun fara yfir innkaupareglur Reykjavíkurborgar. Örkynningar fyrirtækja á vörum og þjónustu
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, sækir fundinn. Á dagskrá að þessu sinni er 1) Styrkveiting í desember, auglýsing og kynning. 2) Væntanleg ráðstefna og skipulag hennar.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB sækir fundinn. Á fundinum verður m.a. á dagskrá: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og áframhaldandi umræður um áherslur nefndarinnar.
Stjórnarfundurinn er haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Eftir að fundargerð hefur verið rituð og samþykkt verður hún birt á vef LEB, eins og venjan er.
Fundur hjá starfshópnum að Jöfri, Skógarhlíð 6, Reykjavík. Fulltrúar LEB á fundinum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson.
Aðventumessa sunnudaginn 1. desember, fyrsta sunnudag í aðventu kl. 14:00 á Hrafnistu í Reykjavík, í Helgafelli 4. hæð. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður Landssambands eldri borgara flytur hugvekju. Einsöngur: Jóhanna Ósk Valsdóttir. Organisti: Bjartur Logi Guðnason. Kór: Félagar úr kór Áskirkju. Prestur: Sr.Svanhildur Blöndal. Sjá auglýsingu með því að smella hér